Um Lýð Jónsson og Önnu Magnúsdóttur
Lýður Jónsson var fæddur 27. mars
1845. Hann var sonur hjónanna á Enni, þeirra Jóns Jónssonar, bónda
á Enni, Andréssonar, og Hallfríðar Brynjólfsdóttur, á Kárastöðum
á Vatnsnesi,
Brynjólfssonar. Lýður lést 27. maí 1937, það var rúmum tveimur mánuðum
eftir andlát eiginkonu hans.
Anna Magnúsdóttir var
fædd 1853. Hún var dóttir Magnúsar bónda á Óspakseyri, Jónssonar,
alþingismanns í Ólafsdal, Bjarnasonar á Hraunum í Skagafirði, og Guðrúnar Jónsdóttur, alþingismanns
úr Skagafirði, Samsonarsonar. Anna lést 19. mars 1937.

Lýður (83 ára) og Anna (76 ára)
árið 1929
Lýður og Anna bjuggu á Stað í Hrútafirði í
Strandasýslu á árunum 1874 til 1880. Eftir það fluttu þau til Ennis
þar sem Lýður hafði alist upp og þar bjuggu þau uns Lýður lét af búskap vegna aldurs árið 1932. Honum er lýst sem
gildum bónda og hreppsstjóri var hann í nær hálfa öld.
Lýður var í hreppsnefnd í 25 ár og var hann lengstum oddviti þann tíma. Einnig
var hann lengi í sýslunefnd. Lýður var gerður riddari af
fálkaorðunni 1932, árið sem hann lét af hreppsstjórn. Jón
sonur þeirra hjóna bjó á Enni ásamt foreldrum sínum frá árinu 1912 og
var síðan einn við búskap þar eftir að Lýður hætti. Sigmundur sonur þeirra
bjó einnig um skeið á Enni eða
á árunum 1910-1914.
 |
 |
 |
 |
 |
 |
| Ingibjörg |
Brynjólfur |
Guðrún |
Magnús |
Sigmundur |
Matthildur |
| |
|
|
|
|
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
| Oddur |
Jón |
Sigurður |
Valgerður |
Anna |
Ragnheiður |
Þau Lýður og Anna bjuggu við mikið barnalán og
varð þeim 12 barna auðið á 22 árum. Börn þeirra voru þessi: Ingibjörg
(1873), Brynjólfur (1875),
Guðrún (1876), Magnús (1878),
Sigmundur
(1880), Matthildur (1883),
Oddur (1884), Jón (1887),
Sigurður (1889), Valgerður
(1890), Anna (1893) og Ragnheiður (1895).
[Jón Guðnason, Strandamenn, bls. 180
og víðar]
[Myndir: Myndasafn Unnar Rögnvaldsdóttur]
|