Um vefinn

Upp ] Vefur Ennisættarinnar ] Ættforeldrarnir ] Skriðinsenni ] Niðjatal ] Ættliðir ] Stafrófsröð ] Fjöldatölur ] Myndasöfn ] Heimildir ] [ Um vefinn ] 


Um vef Ennisættarinnar

Vefurinn var settur upp fyrir ættarmótið 2000. Hann er niðurstaðan af þeirri hugmynd að taka saman niðjatal og gefa út. Undirritaður hafði sýnt nokkurn áhuga á að vinna slíka samantekt en það var þó ekki fyrr en með eindreginni hvatningu frá móður hans, Unni Rögnvaldsdóttur, og loforði við hana að hann hófst handa. Byrjað var á að setja upp áætlun fyrir ættarmótið 1995 og safna gögnum á því móti og fengust gögn frá allmörgum ættingjum. Úrvinnsla og frekari öflun gagna og hönnun vefs hófst síðan ekki að marki fyrr en í júní 2000.

Póstlisti vefsins heldur utan um þá sem skrá sig á listann og með honum er hægt að ná til allra skráðra ættingja og senda þeim fyrirspurnir, tilkynningar eða aðrar orðsendingar. Það er kappsmál að ná með póstlistanum til sem flestra ættingja.

Vefurinn er í smíði og t.d. vantar enn mikið inn í niðjatalið, en hugmyndin er að vinna þetta smátt og smátt eftir því sem færi gefst. 

Kostir vefs umfram bók eru margir. Auðvelt er að leiðrétta og bæta við atriðum og efni sem ekki er hægt með bókarformið. Þá opnast ýmsar leiðir með samskipti ættingja, t.d. um póstlista. Ókostirnir eru helst að oft er þægilegra að lesa af bók en skjá. Eins hafa ekki allir tæki til að skoða vefsíður, en þróunin er þó sú að fleiri og fleiri komi sér upp búnaði og því er spáð að innan fárra ára verði tæki til að ná inn á netið komin á nánast öll heimili landsins.

Umsjón og smíði vefsins:
Magnús Gíslason
Sími 899 4415
E-mail: magnusgi@isholf.is og ennisaett@simnet.is 

 
Til baka ] Upphafssíða ]

Vefur Ennisættarinnar
Síðast breytt: 26.07.2006
ennisaett@simnet.is

 © 2000-2005 Magnús Gíslason