Heimildir
Helstu heimildir sem stuðst hefur verið við:
- Mikilvægar upplýsingar um hina eldri afkomendur eru fengnar úr
hinum kunnu ættfræðiritum Jón Guðnasonar: Dalamenn og
Strandamenn.
- Miklar og um leið nákvæmustu upplýsingar eru frá einstaka
afkomendum sjálfum, m.a. af útfylltum eyðublöðum sem dreift var
á ættarmótinu 1995.
- Nokkuð ítarlegar upplýsingar um allmarga af Ennisætt eru fengnar
úr ættfræðigagnagrunni Guðmundar Aðalsteins Sigurðssonar,
eiginmanns Önnu Kristínar
Ragnarsdóttur á Dalvík, útprentun á árinu 1995.
- Grunnupplýsingar um afkomendur Odds Lýðssonar eru einkum frá Elínu
Oddsdóttur, 1995.
- Ítarlegar upplýsingar um afkomendur Sigmundar Lýðssonar voru
fengnar 2000 úr ættarskrá Hlyns Eggertssonar, eiginmanns Jóhönnu
Lýðsdóttur.
- Gögn um ættlegg Önnu Lýðsdóttur sendi Hermann Sigtryggsson á
tölvuskrárformi.
- Viðbótar- og leiðréttar upplýsingar um ættlegg Önnu Blöndal
hafa komið 2001 frá Önnu
Maríu Blöndal.
- Upplýsingar eru fengnar eftir atvikum úr minningargreinum í
Morgunblaðinu, þær eru merktar Mbl. ásamt dagsetningu og
blaðsíðu.
- Íslendingabók (www.islendingabok.is). Stuðst við upplýsingar
og staðfestinga leitað eftir opnun vefsins 2003.
- Þjóðskráin, staðfestinga leitað í skránni á internetinu.
- Símaskrár á internetinu - staðfestinga leitað.
|