B a r ð a k l ú b b u r i n n

Starfsárið 1999 - 2000
Úrslit og helstu viðburðir þetta starfsárið


 
[ Aðalsíða ] [ Barðabikarinn ] [ Pósthús ] [ Albúmið ] [ Fyrri starfsár ]
Frá fyrri starfsárum
[ 2001-2002 ] [ 2000-2001 ] [ 1999-2000 ]

BarðabikarinnBjörn hampar bikarnum glaður og hreykinnBikarhafi
2000

Björn G. Ólafsson
er klúbbmeistari
1999-2000


Frá klúbbforseta

Í venjubundnu hófi við lok síðasta móts vetrarins gerði forseti að vanda  grein fyrir helstu viðburðum og niðurstöðum starfsársins og afhenti nýjum klúbbmeistara, Birni G. Ólafssyni, hinn eftirsóknarverða Barðabikar við að sjálfsögðu dúndrandi lófaklapp og fögnuð flestra hinna klúbbfélagana.  

Björn Ólafsson tekur við Barðabikarnum úr hendi forsetaMeðan á hinu æsispennandi lokamóti stóð gerði forseti jafnharðan grein fyrir stöðu tveggja efstu manna vetrarins, þeirra Björns og Jörundar, og svo fór að þegar þeir settust andspænis hvorum öðrum í lokaumferð mótsins þurfti Björn að vinna skákina til að öðlast meistaratitilinn, en Jörundi nægði jafntefli. Jörundur stillti upp árásarstöðu með hvítu, en með skiptamunsfórn náði Björn sterkri peðastöðu á miðborðinu með miklum vinningsmöguleikum. Eftir uppskipti reyndi Björn að koma tveimur peðum upp í borð með aðstoð hróks gegn einum hróki Jörundar. Eftir nokkra leiki fram og til baka þar sem Birni yfirsást einföld vinningsleið aftur og aftur reyndi hann nýja leið án þess að átta sg á að hún leiddi beint til jafnteflis. Með pálmann í höndunum fataðist hins vegar Jörundi illilega, því hann gat skipt upp á öllum mönnum og náð jafntefli og þar með bikarnum. Úrslitaskákin: Jörundur með hvíttÚrslitaskákin: Björn með svartÍ ákafanum við að drepa síðasta peð Björns gaf Jörundur hrók sinn og stóð nú allt í einu uppi með kónginn beran gegn hróki Björns. Þar með var Björn kominn með bikarinn í hendur sínar. Ekki er ástæða til að hrósa taflmennsku þessara tveggja efstu manna vetrarins þetta kvöld og allra síst í lokaorrustunni. Forseti gerði að einhverjum ástæðum lítið úr sigri efsta manns mótsins að þessu sinni, hann sagði sigur sigurvegara kvöldsins ekki skipta neinu máli og urðu efstu menn mótsins að sætta sig við það. Skálað var fyrir sigurvegara vetrarins, Birni G. Ólafssyni, og ýmsum öðrum, þ.á.m. keppinauti Björns um bikarinn, Jörundi. Forseti veitti m.a. viðurkenningu fyrir ástundun, en hún kom í hlut Stefáns og einnig fékk Hannes viðurkenningu af svipuðu tagi þar sem hann að auki hafi þurft um langan veg að fara til móta vetrarins.

Að ræðum og athöfnum loknum frestaði forseti starfsemi klúbbsins fram til fyrsta þriðjudags í september síðar á þessu ári 2000.

Frásögn heimssíðunnar

 


Lokastaðan starfsárið 1999-2000

Tafla frá Eggerti og umröðuð af heimasíðu

Lokaumferðin 30. maí 2000
hjá Jóni Gunnar


Þá er aðeins lokamótið eftir, en það verður að óbreyttu
haldið 30. maí á Stokkseyri hjá Jóni Gunnari. Að vanda
mun þá forseti afhenda Barðabikarinn við hátíðlega
athöfn að aflokinni síðustu umferð um leið og hann gerir
nánari grein fyrir lokaúrslitum vetrarins. Síðan mun
hann fresta starfsemi klúbbsins til fyrsta þriðjudags
í september 2000.
Staðfestingar
29.05.2000, árdegis: Í samtali frá Kýpur sl. laugardagskvöld var form-
lega staðfest að lokamótið verður á Stokkseyri annað kvöld kl. 20.
Viljið þið staðfesta hvort þið komið eða ekki. Þau [á Stokkseyri] vildu
gjarnan vita með fyrirvara u.þ.b. hvað margir kæmu ...  Svo er ekki
ólíklegt að menn vilji troða sér í tiltölulega fáa bíla. Ég get komið
á mínum og tekið tvo til þrjá farþega auk Sigurðar. Ég miða við að
leggja í hann austur um sjöleytið.

Með kveðju,
BÞ
 
Talnaleikur
29.05.2000, síðdegis: Eins og allir vita er Björn Ólafsson með 69,71% 
vinninga fyrir síðasta kvöldið og hefur teflt 340 skákir. Jörundur er 
með 69,54% og hefur teflt 412 skákir. Ekki er ósennilegt að þeir keppi-
nautarnir verði dálítið óstyrkir annað kvöld, enda mikið í húfi. Gefum
okkur að tefldar verði 18 umferðir. Verði sú raunin að þeir félagarnir
nái aðeins 9 vinningum hvor fær Björn 68,715%, en Jörundur 68,721% og
vinnur bikarinn. Fái Björn á hinn bóginn 12,5 vinninga og standi eftir
veturinn með 69,69% vinningshlutfall þarf Jörundur 13,5 vinninga til
vetrasigurs (69,77%), en 13 vinningar gefa aðeins 69,65% og þá er bikar-
inn Björns. Það lítur út fyrir góða þátttöku. Fari svo sem er hugsanlegt
en ekki líklegt að þátttakendur verði 11 munu aðeins verða tefldar 10 
umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma. Slík þátttaka yrði vatn á myllu 
Björns og hann gæti unnið bikarinn þótt hann fengi einum vinningi minna 
en Jörundur. Til að svo færi þyrfti Björn þó 8,5 vinninga af 10.

Með kveðju,
BÞ
 

Björn með óbreytt forskot á Jörund
spennan nú þegar aðeins lokamótið er eftir er sú sama og áður

Staða efstu manna fyrir lokaumferð er óbreytt frá því síðast þar sem hvorugur þeirra Björn eða Jörundur sáu sér fært að mæta í næst síðasta mótið þann 23. maí, báðir hafandi fyrir fjarveru sinni óvenjulegar eða hinar undarlegustu afsakanir. Eins segir og útreikningar reiknivers sýna, þá haggast ekki hlutföll þessara tveggja efstu manna:

00:05:24
Tafla frá Eggerti, endurröðuð af heimasíðu

 


Mótið 23. maí
hjá Barða

00:05:24
Tafla og orðsending frá Barða

 


Björn með prósentubrots forskot á Jörund
hámarks spenna nú þegar tvö mót eru eftir 

Staðan fyrir tvær síðustu umferðir vetrarins er sú að Björn er 0,2% yfir Jörundi í vinningahlutfalli með 69,7% á meðan Jörundur hefur 69,5%. Erfitt reyndist að fá álit þeirra tveggja á stöðunni þar sem þeir eru báðir móðir mjög og vart viðmælandi vegna spennunnar. "Ég vissi að þetta gæti alltaf oltið á lögfræðinni", sagði einn lögspekingurinn í klúbbnum, "sá sem er harður á lögfræðinni getur við aðstæður sem þessar þakkað hörkunni og þráanum í sér nái hann að merja sigur". Lögspekingurinn vildi þó taka fram að hann teldi hvorki Björn eða Jörund hafa einhverja sérstöðu í þessum efnum heldur meinti hann þetta bara svona almennt.

Í töflunni að neðan, sem var að berast heimasíðunni, má sjá stöðuna nánar:

Ljóst er að það verður annað hvort Jörundur eða Björn sem mun taka við Barðabikarnum að lokinni síðustu umferð vetrarins þann 30. maí, en bikarinn hefur verið á Hringbrautinni í Hafnarfirði um all nokkurt skeið þar sem Björn heitinn Lárusson hafði haldið honum af öryggi síðastliðin ár.

00:05:17
Tafla frá Eggerti, endurröðuð af heimasíðu

 


Frá skákkvöldi 16. maí
hjá Eddu og Sigurbirni í minningu Björns R. Lárussonar

00:05:17
Tafla og sleggjudómar frá Barða

Átökin milli Björns og Jörundar um bikarinn harðna 

Björn Ólafsson sló Jörundi við í mótinu 16. maí og er nú beðið með spennu eftir lögmætum útreikningum sem sýna hvor þeirra stendur betur í lokarimmunni. Taflan verður birt hér um leið og hún berst heimasíðunni. Barði sendi inn leiðrétta töflu yfir stöðuna 9. maí og er hún hér að neðan í stað fyrri töflu frá Jörundi.

Staðan fyrir þrjár síðustu umferðir vetrarins er sú að Jörundur er efstur með hlutfallið 70,25% en fast á hæla honum kemur Björn Ólafsson með 69,35%. Björn gæti hugsanlega komist fram úr Jörundi með auðveldum hætti nái hann að standa sig örlítið betur á lokasprettinum en Jörundur. Skýringin liggur í því að hver vinningur hjá Birni telur meira hlutfallslega en hjá Jörundi vegna færri skáka Björns í heild. Baráttan um efsta sætið er því á milli þessara tveggja og koma aðrir ekki til greina.

Ljóst ætti því að vera að annað hvort Jörundur eða Björn mun taka við Barðabikarnum að lokinni síðustu umferð vetrarins þann 30. maí, en bikarinn hefur verið á Hringbrautinni í Hafnarfirði um all nokkurt skeið þar sem Björn heitinn Lárusson hafði haldið honum af öryggi síðastliðin ár.

 

Frá Barða:

Tafla frá Barða byggð á reiknistofu Eggerts og endurröðuð af heimasíðu

 


Lokarimman stendur nú sem hæst

Staðan fyrir þrjár síðustu umferðir vetrarins er sú að Jörundur er efstur með hlutfallið 70,3% en fast á hæla honum kemur Björn Ólafsson með 69,4%. Björn gæti hugsanlega komist fram úr Jörundi með auðveldum hætti nái hann að standa sig örlítið betur á lokasprettinum en Jörundur. Skýringin liggur í því að hver vinningur hjá Birni telur meira hlutfallslega en hjá Jörundi vegna færri skáka Björns í heild. Baráttan um efsta sætið er því á milli þessara tveggja og koma aðrir ekki til greina.

Ljóst ætti því að vera að annað hvort Jörundur eða Björn mun taka við Barðabikarnum að lokinni síðustu umferð vetrarins þann 30. maí, en bikarinn hefur verið á Hringbrautinni í Hafnarfirði um all nokkurt skeið þar sem Björn heitinn Lárusson hafði haldið honum af öryggi síðastliðin ár.

Staðan í heild er nú þessi:

Tafla frá Jörundi

Frá skákkvöldi 9. maí
hjá Bjarna Ólafssyni

Tafla frá Barða

 


[ Aðalsíða ] [ Barðabikarinn ] [ Pósthús ] [ Albúmið ] [ Fyrri starfsár ]
Frá fyrri starfsárum
[ 2001-2002 ] [ 2000-2001 ] [ 1999-2000 ]

Síðast breytt: 12.09.2002
Webmaster