|
Mót 37
|
03 05 27
|
| Teflt var á Skúlaskeiði í
þessari lokaumferð starfsársins. Fyrir umferðina var aðeins
sjónarmunur á þeim Birni og Jörundi, Birni nægðu jafnmargir vinningar
og Jörundur fengi til að verða bikarhafi, en Jörundur þurfti vinning
umfram Björn ef hann átti að verja meistaratitil sinn frá síðasta ári.
Fljótlega kom í ljós að Björn tefldi af meira öryggi og fór svo að
hann hafði tryggt sér meistaratitil Barðaklúbbsins fyrir lokaumferðina
þegar hann mætti Jörundi. Björn er því réttkrýndur meistari
starfsársins 2002-2003. Eggert mætti í fyrsta skiptið á starfsárinu og
lagði sitt af mörkum til að halda aftur af Birni, en það kom ekki að
sök fyrir verðandi meistara klúbbsins. |
 |
|
Mót 36
|
03 05 20
|
| Teflt var við Hamarskotslæk. Edda
og Sigurbjörn buðu til móts að þessu sinni og var ánægjulegt að koma á
gamlar slóðir og heiðra með því minningu Björns heitins Lárussonar.
Eins og við var að búast var heldur lítið viðnám klúbbfélaga gegn
taflmennsku Sigurbjörns, það var þó Hannes sem gerði sér lítið fyrir
og hélt uppi merki klúbbsins með eina heila vinningnum sem tekinn var
af Sigurbirni. Björn náði ekki að styrkja heildarhlutfall sitt og dró
því aðeins úr þeim mun sem er á honum og Jörundi í hinni afar jöfnu
baráttu þeirra um bikarinn. Úrslitarimma er því fyrirsjáanleg á milli
þeirra í lokamótinu næsta þriðjudag. |
 |
|
Mót 35
|
03 05 13
|
| Teflt var í Aragötu. Meðan
Halldór er í óða önn í stjórnarmyndunarviðræðum að reyna staðfesta
flokk sinn sem B-deild í Sjálfstæðisflokknum voru okkar turnarnir
tveir, Björn og Jörundur, eitthvað miður sín og náðu ekki árangri í
samræmi við væntingar. Jörundur tefldi reyndar aðeins seinni
umferðina. Adolf tefldi hins vegar vel og vann góðan og verðskuldugan
sigur. |
 |
|
Mót 34
|
03 05 06
|
| Teflt var við Bugðulæk á þessu
síðasta móti kjörtímabilsins. Magnús vann með góðu skori enda að ná
sér upp úr pólitísku þunglyndi, reynandi að sætta sig við það sem í
stefnir með áframhaldandi íhaldsstjórn næstu fjögur árin. Nokkuð
skorti á kraftinn í Birni frá síðustu mótum og gaf hann Jörundi færi á
að minnka prósentubilið sem á milli þeirra er í keppni þeirra um
bikarinn, nú skilja aðeins 2-3 skákir þá að Birni í vil. |
 |
|
Mót 33
|
03 04 29
|
| Teflt var í Háaleiti. Björn
hélt uppteknum hætti og sigraði, greinilega staðráðinn í því að hreppa
bikarinn að þessu sinni. |
 |
|
Mót 32
|
03 04 22
|
| Teflt var á Skúlaskeiði. Í
nokkuð þéttum toppi urði Björn og Bjarni Ólafsson efstir og styrkti
Björn sig örlítið gagnvaty Jörundi í keppninni um bikarinn. Jörundur
var þó aðeins einum vinningi á eftir sigurvegurunum þannig að ekki
breikkaði bilið mikið. Á milli þeirra í þessum þétta toppi var Barði,
aðeins hálfum á eftir efstu mönnum. Rögnvaldur hefur greinilega ekki
teflt neitt í vetur og reið ekki feitum hesti í þessu fyrsta mótiu
sínu að þessu sinni. |
 |
|
Mót 31
|
03 04 15
|
| Teflt var í Blönduhlíð. Eins og
svo oft áður vann Björn mótið. Góður félagi og fulltrúi klúbbsins af
Austurlandi, Sigurður Arnarson, tefldi með að þessu sinni og færði
mönnum tíðindi úr sínum heimahögum. Þar eru allir fullir bjartsýni og
ótal ný karlastörf eru óðum að verða til á svæðinu. Komur munu víst fá
í auknu mæli það hlutverk í uppganginum öllum að þurrka af, ekki mun
af veita, eða svo tjáði Siggi okkur sunnanmönnum. |
 |
|
Mót 30
|
03 04 08
|
| Teflt var í Sólheimum. Með
góðum sigri Björns og óvenju slakri frammistöðu Jörundar að þessu
sinni gerðist það að Björn fór upp fyrir Jörund
í vinningshlutfalli vetrarins og er nú með 69,22% á móti 68,85%
Jörundar. Spennan á toppnum er því orðin harla mikil. Magnús varð í
öðru sæti, hálfum vinningi á eftir Birni líkt og síðast, en þess má
til gamans geta að Magnús hefur unnið flestar skákir í vetur, eða alls
232 skákir. Jörundur tefldi aðeins aðra umferðina og það er spurning
hvort glæsileg frammistaða hans undanfarið í briddskeppnum sé að koma
honum í koll í skákinni í síðustu mótum. Það verður fróðlegt að sjá
hvort Jörundi tekst að hrista af sér skákslenið í þeim mótum sem eftir
eru vetrar. |
 |
|
Mót 29
|
03 04 01
|
| Teflt í Lynghaga. Björn
vann mótið eftir harða keppni þar sem þeir Magnús og síðan Bjarni
fylgdu fast á eftir. Björn saxar óðum á forskot Jörundar í stöðu
vetrarins, Jörundur er nú með hlutfallið 69,65% en Björn stendur í
68,84%. Jörundur hefur í síðustu mótum fallið niður fyrir 70% í fyrsta
sinn í vetur sem gerir það að verkum að spenna færist í leikinn. |
 |
|
Mót 28
|
03 03 25
|
| Teflt var við Bugðulæk. Jörundur
tefldi af öryggi og vann sannfærandi. Þeir Barði og Bjarni Ól skiptu
með sér öðru og þriðja sæti. |
 |
|
Mót 27
|
03 03 18
|
| Teflt var í Grænukinn. Þrír
urðu efstir og jafnir að þessu sinni, Barði, Jörundur og Björn, þannig
að breidd var allmikil í toppinum, en hinir þrír fengu þá að
sjálfsögðu færri vinninga. |
 |
|
Mót 26
|
03 03 11
|
| Teflt var að Háaleiti. Góðir
gestir mættu á staðinn, þeir Egill og Jón Þorvarðarson. Magnús tefldi
með bestum árangri að þessu sinni og vann nokkuð örugglega. |
 |
|
Mót 25
|
03 03 04
|
| Teflt var í Blönduhlíð. Barði
bauð upp á ómældar veitingar Stefáni og öðrum til mikillar gleði, en
heldur var illa mætt svo færri nutu kaffis og meðlætis en skyldi. Magnús náði skori sem
helst minnti á Björn og vann sitt 6. mót. |
 |
|
Mót 24
|
03 02 25
|
| Teflt var í Sólheimum. Mæting
var óþarflega slök, en þeir toppmenn, Jörundur og Björn, deildu með
sér efsta sæti. Mótið hreyfði því lítið við innbyrðis stöðu þeirra á
töflu vetrarins. |
 |
|
Mót 23
|
03 02 18
|
Teflt var í Lynghaga. Húsráðandi
Björn tefldi af ólýsanlegum krafti og vann mótið með tæplega 90%
vinningshlutfalli. Reyndar fylgdi Magnús honum fast eftir en lenti
vinningi undir eftir tap í síðustu umferð.
Vaxandi spenna. Björn hefur saxað heilmikið á það forskot sem
Jörundur hefur haft á þessu starfsári og með þessum síðustu úrslitum
hefur Björn færst upp í 69,07% vinningshlutfall á meðan Jörundur sígur
aðeins, eða í 70,58%. Það munar því ekki nema u.þ.b. 1,5 prósentustigi
á þeim eins og staðan er núna. |
 |
|
Mót 22
|
03 02 11
|
| Teflt var á Skúlaskeiði. Að
þessu sinni vann Magnús mótið. Nokkur forföll voru þetta kvöld og báðu
menn þess að forseti klúbbsins væri nú ekki lagstur í vínsmökkun með
fínu fólki á nýjan leik - eins fánýt iðja og það nú þykir. Vonandi
kann hann haldbetri skýringar en þessar næstkomandi þriðjudag, en þá
munu menn mæta í Lynghagann. |
 |
|
Mót 21
|
03 02 04
|
| Teflt var við Bugðulæk. Ólafur
Hannesson mætti eins og síðast á Bugðulæknum og vann mótið af nokkru
öryggi. Magnús og Jörundur fylgdu honum þó þétt eftir en það dugði
ekki til. Suðurnesjamaðurinn Sigurður H Jónsson var með í fyrsta sinni
á þessu starfsári og þótti mönnum ágætt að sjá hann aftur. |
 |
|
Mót 20
|
03 01 28
|
| Teflt var í Grænutungu.
Sjálfur Barði lét sig vanta í þetta mót og var reyndar óvenju fáliðað
þetta kvöld. Jörundur kom ekki á óvart með sigri sínum, hann hlaut 9,5
vinninga af 12 sem telst allgott eða öllu heldur fullgott. |
 |
|
Mót 19
|
03 01 21
|
| Teflt var að Háaleiti.
Gestgjafinn Jörundur endurtók leikinn frá því síðast og marði sigur í
mótinu hálfum vinningi fyrir ofan næsta mann sem var Magnús að þessu
sinni. |
 |
|
Mót 18
|
03 01 14
|
| Teflt var í Sólheimum.
Jörundur tefldi vel að vanda og tryggði sér sigurinn, en Bjarni Ól og
síðan Magnús komu þétt á hæla hans. |
 |
|
Mót 17
|
03 01 07
|
| Teflt var að Bugðulæk.
Hannes tók á móti klúbbfélögum í nýjum húsakynnum á nýju ári. Hann
tefldi fram leynivopninu syni sínum. Bragðið tókst og Ólafur
Hannesson vann mótið, þó ekki nema með hálfum vinningi umfram Barða.
Barði hefur greinilega snúið dæminu við frá því sem var í síðasta móti
síðasta árs þegar hann barðist við að hanga inni á töflunni. |
 |
|
Mót 16
|
02 12 17
|
| Teflt í Blönduhlíð. Jörundur
kom, sá og sigraði. Björn var bitlausari en oftast áður þetta kvöld og
Barði var hreint út sagt óþekkjanlegur í taflmennsku sinni. Þetta var
síðasta mót ársins, til næsta móts á nýju ári verður boðað af forseta
með dagskrá. |
 |
|
Mót 15
|
02 12 10
|
| Teflt var að Hraðastöðum. Adolf
tefldi vel og vann mótið, en Björn og Bjarni Ólafsson komu fast á hæla
hans. Hinir voru nokkuð langt að baki þessum þremur efstu. Hannes
framdi sitt fyrsta skróp þetta starfsárið þannig að Stefán hefur nú
jafnað hann í ástundun. |
 |
|
Mót 14
|
02 12 03
|
| Teflt var á Aragötu. Björn vann
glæsilega líkt og síðast. Aðrir urðu langt á eftir honum. Jörundur
tefldi í fyrri hluta mótsins með ekki síðri árangri en Björn svo
keppni hefði geta orðið mikil milli þeirra ef Jörundur hefði geta
teflt í síðari umferðinni. Magnús tefldi aðeins í síðari umferðinni. |
 |
|
Mót 13
|
02 11 26
|
| Teflt var norðanvert við
Hellisgerði. Björn barðist um á hæl og hnakka og vann, hlaut 12,5
vinninga af 15 mögulegum. Magnús fékk einum vinningi minna og aðrir
voru talsvert þar á eftir. |
 |
|
Mót 12
|
02 11 19
|
| Teflt var í Grænukinn. Björn
mun hafa verið í útlöndum á kostnað skattborgara eftir því sem
upplýstingar fengust um og Jörundur var einnig fjarri góðu gamni en án
viðurkenndrar afsökunar. Jón Gunnar stóð sig best og vann með 70%
hlutfalli. Bjarni kom fast á hæla hans og aðrir þar á eftir. |
 |
|
Mót 11
|
02 11 12
|
| Teflt var við Hraunbraut. Björn
og Magnús tefldu báðir vel og hlutu 11 vinninga af 14 mögulegum og
deildu með sér efstu sætum. Nokkur umræða var um prófkjör helgarinnar
og var húsráðanda Margréti óskað til hamingju með árangur sinn á þeim
vettvangi. Minnugir aðferðanna í Norð-Vestur kjördæmi héldu menn aftur
af sér við skákborðið og reyndu ekki að hafa í frammi mikil brögð í
tafli. |
 |
|
Mót 10
|
02 11 05
|
| Teflt var við Háaleiti. Nokkur
forföll voru þessu sinni. Til tíðinda bar að Jörundur bókstaflega gaf
engan grið og vann með yfir 90% vinningshlutfalli. Þótti af þessum
ástæðum ýmsum nóg um gestrisnina á hans heimavelli þetta kvöld. |
 |
|
Mót 09
|
02 10 29
|
| Teflt var í Sólheimum. Magnús
byrjaði með fáeinum töpum en gaf síðan ekkert eftir og varð efstur með
75% vinningshlutfall. Jörundur kom á hæla hans, hálfum vinningi á
eftir, og Björn lenti í 3ja sæti. |
 |
|
Mót 08
|
02 10 22
|
| Teflt var við Bugðulæk. Jóni
Gunnari var fagnað og náði hann næstum að vinna mótið, en Jörundur sá
til þess að svo færi ekki og tók efsta sætið með 75% vinningshlutfall. |
 |
|
Mót 07
|
02 10 15
|
| Teflt var að Hraðastöðum.
Magnús
og Jörundur unnu mótið með 10 vinningum af 14 mögulegum. Jörundur
leiddi mótið þar til Magnús komst fram úr honum í næst síðustu umferð
en staðan jafnaðist í þeirri síðustu. |
 |
|
Mót 06
|
02 10 08
|
| Teflt var á Skúlaskeiði.
Magnús
tefldi af miklum móð á heimavellinum og stóð uppi sem sigurvegari með
73,3% vinningshlutfall. Þrír röðuðu sér í næsta sæti, þ.e. 2-4. |
 |
|
Mót 05
|
02 10 01
|
| Teflt var að í Lynghaga. Björn
tefldi af miklum móð á heimavellinum og stóð uppi sem sigurvegari með
yfir 80% vinningshlutfall. Svona vel að merkja, þá er það svo sem ekki nýtt
háttarlag hjá honum. |
 |
|
Mót 04
|
02 09 24
|
| Teflt var að í Blönduhlíð.
Bjarni Ólafsson stóð sig hvað best að þessu sinni og vann mótið með
rúmlega 70% vinningshlutfalli. Aðrir fengu minna. |
 |
|
Mót 03
|
02 09 17
|
| Teflt var að Aragötu. Góður
félagi, Smári, mætti að vestan og tók 3ja sætið. Í öðru sæti með 65.6%
vinningahlutfall varð Jörundur. En það var Björn sem tók fyrsta sætið
með trompi, fékk 81,3% vinningshlutfall. |
 |
|
Mót 02
|
02 09 10
|
| Teflt var í Grænutungu. Óskar
tefldi vel að vanda, eins og hann alltaf gerir þegar hann er staddur
hér á landi. Karl faðir hans stoppaði hann þó vel af (þrátt fyrir
allan barlóm um hvernig drengurinn væri búinn að leika hann grátt
undanfarið) og það varð til þess að Jörundur náði að deila með honum efsta sæti
eftir að þeir höfðu skilið jafnir í innbyrðis viðureignum. |
 |
|
Mót 01
|
02 09 03
|
| Mótshald á nýju starfsári hófst í
Hvassaleiti. Jörundur annaðist töflu og móststjórn í forföllum
Barða, en auk hans var Stefáns einnig saknað. Hannes er kominn úr
útlegðinni frá síðasta vetri og mætti að sjálfsögðu galvaskur. Magnúsi
tókst að vinna þetta fyrsta mót starfsársins. |
 |
|