Barðaklúbburinn varð til snemma á
áttunda áratug síðustu aldar og verðskuldar aldurs vegna og
stöðugleika að teljast með
virðulegri heimahúsaklúbbum. Starfsemin er á
höfuðborgarsvæðinu en nær þó einnig til öfluga félagsmanna í
hinum landshornunum. Teflt er í heimahúsum reglulega einu sinni í viku
frá fyrsta þriðjudag í
september til síðasta þriðjudags í maí næsta ár. Stjórnun er öll í höndum ævarandi
forseta klúbbsins og hefur honum farnast í störfum sínum með eindæmum vel.
Almennir félagar þurfa til dæmis ekki að hafa áhyggjur af stefnumótun
eða starfsáætlunum,
mótsstjórn eða töfluhaldi, staðarvali móta eða dómum í
ágreiningsmálum. Þess í stað tefla þeir af þeim mun meiri gleði, kappi og
ánægju, þökk sé forseta klúubbsins.

| 1988 |
Jón Gunnar Ottósson |
1989 |
Jón Gunnar Ottósson |
1990 |
Jörundur Þórðarson |
| 1991 |
Magnús Gíslason |
1992 |
Sigurbjörn Björnsson |
1993 |
Sigurbjörn Björnsson |
| 1994 |
Björn R. Lárusson |
1995 |
Björn R. Lárusson |
1996 |
Björn R. Lárusson |
| 1997 |
Magnús Gíslason |
1998 |
Björn R. Lárusson |
1999 |
Björn R. Lárusson |
| 2000 |
Björn G. Ólafsson |
2001 |
Jörundur Þórðarson |
2002 |
Jörundur Þórðarson |
| 2003 |
Björn G. Ólafsson |
|
|
|
|
|
Um Barðabikarinn hefur verið teflt frá árinu 1988.
Bikarinn er með hefðbundnu lagi og er nafn hans grafið með áberandi
hætti á framhliðina. Bikarinn stendur á stöpli úr rauðgulu
marmaralíki og á stöpulinn eru festar litlar silfurplötur sem í eru
greipt nöfn
bikarhafa hvers árs. Bikarinn var framlag Björns heitins Lárussonar og Eggerts
Lárussonar til klúbbsins á sínum tíma. Tilgangurinn með bikarnum er að skerpa baráttuvilja
félagsmanna, gera keppni alla betur markvissa og árangur
eftirsóknarverðan. Ekki er að efa að bikarinn hefur haft jákvæð
áhrif á taflmennsku flestra klúbbfélaganna og gert keppni alla
skemmtilegri.
Mynd frá Magnúsi
Síðast breytt:
02.06.2003
Webmaster
|