[ Aðalsíða ] [ Barðabikarinn ] [ Pósthús ] [ Albúmið ] [ Fyrri starfsár ]Frá fyrri starfsárum
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
B i k a r h a f i 2 0 0 2Jörundur ÞórðarsonJörundur er handhafi Barðabikarins annað árið í röð. Hann tefldi afar vel nær undantekningarlaust allan veturinn og hlaut 70,1% úr 353 skákum. Alls vann Jörundur 13 mót eða röskan þriðjung móta starfsársins. Jörundur er í greinilegri framför því vinningahlutfall hans árið á undan var aðeins 67,9%. Klúbbfélagar óska handhafanum til hamingju með árangurinn. Í lokamóti vetrarins gerði forseti Barðaklúbbsins grein fyrir starfseminni síðasta starfsárið, rakti úrslit og afhenti klúbbmeistara ársins Barðabikarinn.
Smella hér
|
|
|
Hér er staðan uppfærð jafnóðum að afloknu
hverju móti. Hægt er að leika sér með tölur í töflunni og með
hægri músarhnappi má raða töflu o.fl. Hægra megin við töflu
(nota örvahnapp á töflu) má sjá innfærslur fyrir einstaka mót. Ef töflunni
hefur verð raskað færist hún í rétt horf þegar vefsíðan er opnuð
á ný eða hún endursótt (refresh/reload). Ekki er víst að aðrir
vefskoðarar en Microsoft Internet Explorer sýni töfluna, en
hún er gerð með Microsoft Office tækni.
|
|
Mót 38 |
02 05 28 |
|
Teflt var á Hraunbraut. Eins og hefð er fyrir, þá var lokamót starfsársins í boði þeirra Margrétar og Jóns Gunnars. Úrslit móts breyttu engu um það hver yrði bikarhafi þetta árið. Bjarni tefldi vel og vann mótið en Jörundur hampaði bikarnum nú annað árið í röð. |
|
![]() |
|
|
|
|
Mót 37 |
02 05 21 |
|
Teflt var á Hraðastöðum. Baráttan var fremur jöfn þar sem þeir Bjarni Ólafsson og Björn skiptu með sér 1. og 2. sæti. Jörundur var svo hálfum vinningi á eftir þeim o.s.frv. Ljóst er að Jörundur hefur tryggt sér bikarinn í ár og fer lokaumferðin fram næsta þriðjudag, í vikunni eftir kosningarnar til sveitastjórna og atkvæðagreiðslu um besta Eurovisionlagið. |
|
![]() |
|
|
|
|
Mót 36 |
02 05 14 |
|
Teflt var að Skúlaskeiði. Jörundur styrkti sig á toppnum með því að vinna mótið og má heita að nú sé aðeins fræðilegur möguleiki á að Björn geti náð honum í þeim tveimur mótum sem eftir eru á þessu starfsári. |
|
![]() |
|
|
|
|
Mót 35 |
02 05 07 |
|
Teflt var í JM húsi. Jörundur tefldi af krafti og gerði sitt til að styrkja sig á toppnum á meðan Björn átti sitt slæma mót þetta kvöld. Jörundi tókst meira að segja að halda Sigurbirni frá fyrsta sætinu svo mikil var harkan í honum. Edda bauð til mótsins og voru móttökurnar afar ánægjulegar, eins og alltaf var í þá góðu gömlu daga þegar teflt var hjá henni og Birni heitnum Lárussyni. |
|
![]() |
|
|
|
|
Staðan þegar 4 mót eru eftir |
02 04 30 |
|
Björn sækir ískyggilega hratt að Jörundi í toppbaráttunni og þarf nú ekki nema örfáa vinninga fram yfir Jörund til að skáka honum úr efsta sæti. Spennan magnast og er orðin mun meiri og skemmtilegri en spennan milli R-lista og D-lista í borginni á þessu kosningavori. |
|
![]() |
|
|
|
|
Mót 34 |
02 04 30 |
|
Teflt var í Lynghaga. Björn tefldi af sínum alkunna vígamóð og stefndi lengi vel á fullt hús, en gaf þó eftir í lokahrinunni. Engu að síður bætti hann stöðu sína og ógnar nú Jörundi meira en nokkru sinni fyrr í atlögunni um bikarinn. Eftir mótið var samkvæmt hefð haldið á stemmingskrár í miðborginni í tilefni baráttudagsins 1. maí og vopnin brýnd. |
|
![]() |
|
|
Klúbbfélagar vilja nota
tækifærið og óska forseta sínum til hamingju
með
stórafmælið og það rausnarlega boð sem hann hélt vinum og
vandamönnum síðastliðinn föstudag, 26. apríl, og bauð að
sjálfsögðu okkur félögum til.
Sérstakt skeyti barst frá Barða með skákkvöldstilkynningunni um mót kvöldsins, svohljóðandi:
Ennfremur segir:
Frá Birni barst um hæl þetta skeyti:
|
|
|
|
|
Mót 33 |
02 04 23 |
| Teflt var í Sólheimum. Björn var sem bakari þetta kvöld og þótti engum gott að lenda í bakaríinu hjá honum, enda var maðurinn einstaklega heppinn í skákum sínum. Jörundur var ekki sá klettur í hafinu sem hann oftast hefur verið og sýndi hann nokkurn óróleika yfir velgengni Björns, sem saxar nú stöðugt á forskot hans. Af einhverjum ástæðum virðist Barði hafa stefnt á 50% og kann það að skýrast af því að þessi merka tala er ofarlega í huga hans þessa dagana. Hann ætlar reyndar að gera mönnum dagamun vegna hennar fyrir lok vikunnar. Rétt er að benda á að Magnús fór vel af stað í fyrstu umferð en fékk varla vinning í seinni tveimur umferðunum enda óstjórnlega óheppinn í skákum sínum að þessu sinni. | |
![]() |
|
|
|
|
Mót 32 |
02 04 16 |
| Teflt var í Grænukinn. Björn vann góðan sigur og gerir hann greinilega sitt til þess að saxa á forskot Jörundar. Ansi erfitt kann það þó að reynast að ætla sér að ná Jörundi í þeim sex mótum sem eftir eru að í vetur. Bjarni Ól. og Jörundur skiptu með sér sætum 2-3 með fremur lágu hlutfalli enda keppnin tiltölulega jöfn að þessu sinni ef frá er talinn árangur Björns. | |
![]() |
|
|
|
|
Staðan þegar 7 mót eru eftir |
02 04 09 |
| Jörundur heldur traustri forustu sinni enn, nú þegar styttist í starfsári klúbbsins að þessu sinni. Björn er talsvert lægri í vinningahlutfalli og ógnar Jörundi tæpast lengur. Þessir tveir eru langt fyrir ofan aðra, Jón Gunnar kemur að vísu með svipað hlutfall og Björn, en á ekki nema 90 skákir á bak við hlutfall sitt. | |
![]() |
|
|
|
|
Mót 31 |
02 04 09 |
| Teflt var í Háaleiti. Nú var það Bjarni Ólafsson sem gerði sér lítið fyrir og vann mótið. Tefldar voru þrjár umferðir og öllum til mikillar furðu gerðist það að upp kom ruglingur í töflu þannig að Stefán þurfti að tefla tvær stakar skákir í kaffihléinu til að leiðrétta umferðirnar. Enginn viðstaddra minntist þess að neitt slíkt hefði áður gerst í áratuga langri mótsstjórn klúbbforsetans. Sjálfur taldi hann að keppendur hefðu ekki farið eftir niðurröðun hans á borð og því hefði skekkjan komið upp, en hún kom í ljós þegar Stefán gerði athugasemd við það að hann væri að lenda í hjásetu í þriðja skiptið í röð. | |
![]() |
|
|
|
|
Mót 30 |
02 04 02 |
| Teflt var að Hraunbraut í skjóli Kópavogskirkju. Björn reyndist sem oft áður óstöðvandi og vann með 10½ vinningi af 14 mögulegum. Gestgjafi var Jón Gunnar og var tekið vel á móti klúbbfélögum að vanda, nú á nýjum stað. Skákaðstaða var hin prýðilegasta og augljóslega voru ný húsakynni valin með tilliti til þarfa klúbbsins eins og tíðkast jú alltaf hjá félögunum. | |
![]() |
|
|
|
|
Mót 29 |
02 03 26 |
| Teflt var í Blönduhlíð. Björn vakti upp gamla takta og vann mótið fyrirhafnarlítið - að því er virtist - en ýmsir töldu eftir svona á að hyggja að hann gæti þakka alkunnri hundaheppni sinni margan vinninginn eins og svo oft áður. Jón Gunnar og Magnús deildu með sér næstu tveimur sætum. Eggert lét sjá sig að þessu sinni en var greinilega í lítilli æfingu, hann var þó að komast á talsvert skrið er mótinu lauk. | |
![]() |
|
|
|
|
Mót 28 |
02 03 19 |
| Teflt var á Hraðastöðum. Nú var það Bjarni Ólafsson sem tók á stóra sínum og bætti gengið frá síðustu mótum. Vann hann góðan sigur að þessu sinni. Jörundur reyndist flúinn til Belgíu að spila bridge að sögn forseta klúbbsins, sem leit málið greinilega alvarlegum augum er hann sagði tíðindin. | |
![]() |
|
|
|
|
Mót 27 |
02 03 12 |
| Teflt var í Lynghaga. Jón Gunnar komst í gamalkunnan baráttuham og vann góðan sigur. Björn varð í öðru sæti með þokkalegt hlufall eins og hans er von og vísa. | |
![]() |
|
|
|
|
Mót 26 |
02 03 05 |
| Teflt var á Skúlaskeiði. Eftir harða toppbaráttu stóð Barði uppi sem sigurvegari kvöldsins með rúm 70% sem vinningahlutfall. Jón Gunnar og Björn urðu í 2-3 sæti, en Jörundur var ekki svipur hjá sjón, hann var greinilega ekki í formi þetta kvöldið. | |
![]() |
|
|
|
|
Mót 25 |
02 02 26 |
| Teflt var í Sólheimum. Mótið gekk ósköp líkt fyrir sig og síðast. Jörundur hélt uppteknum hætti og vann, Jón Gunnar hélt áfram í æfingarleysi sínu að gera sig breiðan og hinir komu þar á eftir. Reyndar eru menn farnir að draga í efa þetta með æfingarleysið og telja fremur að hér sé bara á ferð gamall refur sem sé með þessu að reyna að setja andstæðinga sína út af laginu og það með góðum árangri. | |
![]() |
|
|
|
|
Mót 24 |
02 02 19 |
| Teflt var í Grænutungu. Jörundur hóf sig til flugs á ný og vann. Jón Gunnar kom fast á hæla hans og ætlar hann sér greinilega að sýna að hann sé mættur bráðferskur á ný eftir langt frí. | |
![]() |
|
|
|
|
Mót 23 |
02 02 12 |
| Teflt var í Blönduhlíð. Þetta mót var Stefáns sem náði góðum árangri eftir langvarandi þróun kerfis síns. Magnús marði að verða jafnfætis Stefáni en Jörundur mátt bíta í súrt epli minnugur næstu móta á undan. Annars nokkuð jafn toppur þetta kvöld. | |
![]() |
|
|
|
|
Mót 22 |
02 02 05 |
| Teflt var á Hraðastöðum. Aftur vann Jörundur með glæsilegu vinningshlutfalli enda furðulega heppinn í þau skipti sem hann komst í ógöngur. Gömlum liðsmanni, Jóni Gunnari, var vel fagnað og stóð hann sig bara vel ef tekið er mið af því að hann hefur að eigin sögn ekki teflt nokkurn skapaðan hlut í áraraðir (eða var það um árabil). | |
![]() |
|
|
|
|
Mót 21 |
02 01 29 |
| Teflt var í Háaleiti. Jörundur var spar á kurteisina eins og oft áður og leyfði aðeins eitt jafntefli. Aðrir fengu minna. | |
![]() |
|
|
|
|
Mót 20 |
02 01 22 |
| Teflt var á Skúlaskeiði. Aftur vann Björn, nú með 71% vinningum. Góður félagi, Sigurður Eiríksson, mætti að norðan og átti hann mikinn lokasprett, vann allt í seinni umferðinni. Það dugði honum í 2-3 sæti sem hann náði ásamt Bjarna Ólafssyni. | |
![]() |
|
|
|
|
Mót 19 |
02 01 15 |
| Teflt var í Hjarðarhaga. Björn var í banastuði og gaf einungis eftir í tveimur skákum. Höfðu menn það í flimtingum að heldur væri þetta nú lítil gestrisni af hans hálfu að hirða sjálfur nánast alla vinningana. En Björn vann svo sannarlega fyrir sínu með sinni gamalkunnu útsjónarsemi á alla bóga. | |
![]() |
|
|
|
|
Mót 18 |
02 01 08 |
| Að þessu sinni var teflt í Grænutungu. Jörundur setti sig í gamalkunnar stellingar og vann góðan sigur. Minnugur úrslitanna síðast mátti Barði bíta í súrt epli. | |
![]() |
|
|
|
|
Mót 17 |
02 01 02 |
| Haldið var í Sólheimum hið fyrsta mót á nýju ári. Barði gerði sér lítið fyrir og hreint og klárt vann mótið án teljandi fyrirhafnar. Hannesi var vel fagnað eftir útlegðina í Svíaríki og fékk hann nú að reyna stirða skákfingur sína í alvöruskákum í stað músaskáka sinna á netinu síðasta misserið. Hann ætlar að láta sjá sig aftur áður en hann heldur í útlegð á ný - til Stóra-Bretlands. | |
![]() |
|
|
|
|
Staðan í árslok 2001 |
01 12 18 |
| Tefldar hafa verið 710 skákir í 16 mótum. Jörundur hefur forystu með tæplega 70% vinningshlutfall, hann hefur fengið 104 vinninga í 150 skákum. Hann hefur unnið flest mót eða 6 alls. Bjarni Ólafsson hefur unnið flestar skákir, samtals 122. Stefán hefur teflt flestar skákirnar það sem af er starfsárinu eða alls 218 skákir. | |
![]() |
|
|
|
|
Mót 16 |
01 12 18 |
| Teflt var í Blönduhlíð á þessu lokamóti ársins hjá Barðaklúbbnum. Magnús hélt dampinum frá því síðast og vann með 73,3% vinningshlutfalli. Forseti leitaði afbrigða varðandi næsta mót og boðaði það svo á miðvikudegi. Verður það fyrsta mót næsta árs, haldið þann 2. janúar 2002. | |
![]() |
|
|
|
|
Mót 15 |
01 12 11 |
| Teflt var á Hraðastöðum. Magnús náði að sigra að þessu sinni, en aðalkanónur vetrarins, þeir Björn og Jörundur, létu sig vanta þetta kvöld. Sigurður skógarbóndi ætlaði að vera með í mótinu en flugi var seinkaði að austan svo hann náði ekki í tæka tíð. Kann klúbburinn Flugfélaginu litlar þakkir fyrir þetta tiltæki. | |
![]() |
|
|
|
|
Mót 14 |
01 12 04 |
| Mótið var haldið á Skúlaskeiði. Bjarni Ólafsson tefldi með bestum árangri þetta kvöld og hlaut 11½ vinninga af 15 mögulegum. | |
![]() |
|
|
|
|
Mót 13 |
01 11 27 |
| Teflt var í Lynghaga. Björn tefldi að þessu sinni með ólíkindum vel á heimavellinum og mnnstu munaði að hann stæði uppi með fullt hús. Það var aðeins með mikilli lánsemi að eitt jafntefli náðist gegn honum, en í þeirri skák tefldi Björn áfram eftir að andstæðinurinn var fallinn á tíma og hætti ekki fyrr en hann sjálfur var einnig fallinn. | |
![]() |
|
|
|
|
Mót 12 |
01 11 20 |
| Háaleiti var mótsstaður kvöldsins. Heimamaðurinn Jörundur vann með vinningshlutfallinu tveimur á móti þremur og bætti einum mótssigrinum í safnið. | |
![]() |
|
|
|
|
Mót 11 |
01 11 13 |
| Teflt var að Hringbraut JM í Hafnarfirði í boði Eddu og Sigurbjörns. Eins og vænta mátti hafði Sigurbjörn lítið fyrir sigri sínum í mótinu. Aðeins tókst þó að halda aftur af honum í seinni hluta mótsins þar sem hann varð að gefa eftir í tveimur skákum. Það var einstaklega ánægjulegt að mæta enn á ný á gamalkunnan stað að Hringbraut JM og fá sömu góðu og hlýju móttökurnar eins og ávalt var þegar teflt var hjá Birni heitnum Lárussyni. | |
![]() |
|
|
|
|
Mót 10 |
01 11 06 |
| Teflt var í Grænukinn. Björn spennti bogann hátt og vann með tilþrifum, kannski kominn í gamla meistaraformið aftur. Barði mætti í seinni hluta mótsins og tefldi því færri skákir. | |
![]() |
|
|
|
|
Mót 09 |
01 10 30 |
| Teflt var þessu sinni í Sólheimum. Bjarni Ólafsson vann með góðum yfirburðum og Barði tryggði sér annað sætið minnugur slakrar frammistöðu á heimavelli síðast. | |
![]() |
|
|
|
|
Mót 08 |
01 10 23 |
| Blönduhlíð var mótsstaður kvöldsins. Þeir Björn og Bjarni Ólafsson deildu tveimur efstu sætunum en Jörundur mátti sætta sig við það þriðja. Magnús hitti Hannes fyrr um daginn á ICC og skilaði kveðju til félaganna frá honum úr Svíaríki. Hannes hafði hvatt Magnús til að láta ekki Jörund vaða stöðugt yfir sig og aðra og lagði Magnús sitt af mörkum til að það mætti rætast. | |
![]() |
|
|
|
|
Mót 07 |
01 10 16 |
| Teflt var að Hraðastöðum. Það verður að viðurkennast að Jörundur á hól skilið því enn vann hann með sinni gamalgrónu útsjónasemi og öruggu taflmennsku. Búast má við að aðrir leggist nú á eitt um að koma Jörundi aftur niður á jörðina því fimm unnin mót af sjö er eitthvað sem menn ætla ekki að láta sem þeir sjái ekki. | |
![]() |
|
|
|
|
Mót 06 |
01 10 09 |
| Teflt var í Lynghaga. Tefldar voru þrjár umferðir og gnæfði Jörundur langt yfir jafningja sína með því að vinna mótið með 12 vinningum af 15 mögulegum (80%). Hinir voru allir nokkuð jafnslakir sem sést á því að Magnús náði öðru sæti með 50% vinningshlutfalli! | |
![]() |
|
|
|
|
Mót 05 |
01 10 02 |
| Teflt var að Skúlaskeiði. Tefldar voru þrjár umferðir og staðfesti Jörundur að árangur hans til þessa í vetur er engin tilviljun. | |
![]() |
|
|
|
|
Mót 04 |
01 09 25 |
| Teflt var í Grænukinn. Jörundur vann, en Óskari brást bogalistin að þessu sinni. | |
![]() |
|
|
|
|
Mót 03 |
01 09 18 |
| Teflt var í Háaleiti. Óskar hélt uppteknum hætti og náði inn flestum vinningunum. | |
![]() |
|
|
|
|
Mót 02 |
01 09 11 |
| Teflt var í Sólheimum. Jörundur er með sigri sínum að sýna að hann verður til alls líklegur í vörninni á meitsaratitlinum frá síðasta ári. | |
![]() |
|
|
|
|
Mót 01 |
01 09 04 |
| Þetta fyrsta móti starfsársins var haldið í Blönduhlíð. Óskar stal senunni eins og oftast þegar hann heimsækir klúbbinn, hann vann með 15 vinningum af 18. Björn fékk 14 vinninga og er vafalaust með því að gefa til kynna á hvað hann ætlar að stefna í vetur. | |
![]() |
|
|
|
|