[ Aðalsíða ] [ Barðabikarinn ] [ Pósthús ] [ Albúmið ] [ Fyrri starfsár ]Frá fyrri starfsárum
|
![]() |
Bikarhafi 2001Jörundur Þórðarson
|
Barðaklúbburinn hefur verið við lýði frá því snemma á
áttunda áratug síðustu aldar og verðskuldar (þó ekki sé nema af
þeirri ástæðu einni) að teljast með
virðulegri heimahúsaklúbbum, jafnvel þótt leitað sé um víða veröld.Klúbburinn starfar einkum á Stór-Reykjavíkursvæðinu en á sér þó einnig öfluga félaga í öllum öðrum landshornum. Starfsemin hefur verið mjög regluleg gegnum tíðina, teflt er í heimahúsum einu sinni í viku í níu mánuði ár hvert. Starfsárið hefst fyrsta þriðjudag í september og því lýkur síðasta þriðjudag í maí ár hvert. Stjórnun klúbbsins er öll í höndum ævarandi forseta klúbbsins og hefur honum farnast í störfum sínum með eindæmum vel. Almennir félagar þurfa því ekki að hafa áhyggjur af stefnumótun eða starfsáætlunum, mótsstjórn eða töfluhaldi, staðarvali móta eða dómum í ágreiningsmálum, en tefla þess í stað af þeim mun meiri gleði, kappi og ánægju.

Á lokamótinu á Stokkseyri 29. maí 2001
Stefán, Bjarni Ól, Jörundur, Eggert, Hannes, Magnús,
Björn, Jón Gunnar, Barði og Bjarni Bj.
Starfsári Barðaklúbbsins 200-2001 lauk með lokamóti á Stokkseyri eins og venja hefur verið undanfarin allmörg ár. Jörundur Þórðarson varð klúbbmeistari með 67,9% vinningahlutfall eftir harða baráttu undir lok vetrarins við Björn Ólafsson, sem hlaut 66,1% vinningahlutfall.
Forseti klúbbsins flutti skýrslu starfsársns, tilkynnti úrslit og afhenti nýja meistaranum hinn eftirsóknarverða Barðabikar. Skálað var fyrir sigurvegaranum Jörundi og einnig gestgjafanum, Margréti Frímannsdóttur, sem jafnframt var afmælsbarn kvöldsins. Stefán fékk viðurkenningu fyrir bestu mætingu sem hann reyndar vann á hlutkesti við Magnús. Þá þakkaði forsetinn höfðinglegar móttökur þeirra Stokkeyrarhjóna, Margrétar og Jóns Gunnars, og sleit að því loknu starfseminni þetta starfárið.

Tölur frá Reiknistofu Barðaklúbbsins - Eggert


Samkvæmt útreikningum
heimasíðunnar hefur
Jörundur unnið flest mót vetrarins. Næstur
honum er Björn og kemur þessi röð ekki á
óvart. Enn eru tvö mót eftir.


Nýjar tölur frá Eggerti hafa
borist. Með kraftmikilli
taflmennsku hefur Jörundur aukið forskot sitt á Björn í
síðustu mótum þannig að Björn verður nú að setja allt
í botn ætli hann sér að eiga möguleika á að halda bikarn-
um.






Þetta eru nýir útreikningar frá
Reiknistofu Barðaklúbbs-
ins. Spennan frá í fyrra gæti endurtekið sig því nú munar
aðeins örlitlu prósentubroti á þeim Jörundi og Birni.






Staðreyndir 21. feb. 2001
Í vetur eru búin 25 mót - 14 mót eru eftir. Í þessu ljósi er rétt að líta á mætingu félaga í vetur og hverjir koma til álita þegar bikarinn verður afhentur þann 29. maí í vor. Eins og allir vita þarf félagi að taka þátt í 25 mótum að lágmarki til að hann komi til álita um bikarinn eða að tefla a.m.k. 340 skákir.
Þátttakan
er nú sem hér segir hjá þeim sem hafa mætt 10 sinnum eða oftar
(21.02.2001):
| Magnús | 24 | Hannes | 21 | Jörundur | 14 | |||
| Stefán | 24 | Bjarni Ól. | 20 | Jón Gunnar | 10 | |||
| Barði | 23 | Björn | 15 | Bjarni Bj. | 10 |
Eins og
þessar tölur sýna geta Jón Gunnar og Bjarni Bj. ekki unnið bikarinn
á þessu ákvæði - þátttaka þeirra verður 24 skipti að hámarki.
Jörundur á ágæta möguleika - hann þarf aðeins að mæta í 11
skipti af 14, og Björn enn betri - hann þarf að mæta 10 sinnum. Svo
ekki sé nú talað um Stefán, Magnús, Barða, Hannes og Bjarna Ól. -
þeir eru allir örskammt frá þátttökumarkinu.
Sé litið
á skilyrðið um teflar skákir þá kemur í ljós að miðað við
umferðafjölda í mótunum í vetur virðist aðeins auðveldara að ná
markinu með þeirri leið. Meðalfjöldi skáka á kvöldi til þessa
er sem næst 14,1, og 14,1 skák sinnum 24 skipti gera 338,4 skákir. Í
þessu ljósi gætu Jón Gunnar og Bjarni Bj. enn verið með í
bikarbaráttunni ef þeir mæta 100% það sem eftir er. Jörundur gæti
sloppið með 10 mót til viðbótar og Björn 9.
Næsta mót
verður haldið á mínu heimili þriðjudaginn 27. febrúar. Í ljósi
ofangreindra staðreynda kæmi mér ekki á óvart þótt Jón Gunnar,
Bjarni Bj., Jörundur og Björn mættu þar allir.



Vefsíðunni hefur borist
útreikningur frá Reiknistofunni
Eggert á stöðunni eins og hún er eftir mótið 6. febrúar.
Ljóst er að með sama áframhaldi gæti þátttökuhlutfall
tveggja efstu manna orðið á mörkum þess að vera lögmætt
með tilliti til mögulegs bikarhafatitils. Vefsíðan væntir
þess að keppnin geti fremur orðið um vinningahlutfall en
þátttökuhlutfall, að öðrum kosti gæti keppnin farið að
minna óþyrmilega á kapphlaupið um talninguna í bandaríkja-
forsetakosningunum og yrði það ekki til þess að auka veg-
semd klúbbsins sem alltént hefur annars á sér gott orð.























Útslit 19.09.2000

04.09.00
Boðað hefur verið til fyrsta skákkvölds á nýju starfsári 2000-2001. Teflt verður hjá Barða sjálfum á þriðjudag 5. sept. 2000 og hefst umferðin að vanda um kl. 20.00.
Klúbbforseti hefur lýst því að hann vænti drengilegrar keppni á komandi starfsári eins og verið hefur hingað til og að menn takist kröftuglega á um Barðabikarinn sem nú er í höndum Björns G. Ólafssonar.
Forseti væntir þess að þeirri stefnu vefsíðu klúbbsins, að vera sem mest lifandi, verði áfram fylgt eins og var á fyrstu starfsdögum hennar í maí. Vefsíðan tekur undir þetta og heitir því að svo verði nema annað komi í ljós. Vefsíðan vill um leið nota tækifærið og bjóða menn velkomna til leiks og væntir jafnframt góðs samstarfs við þá.