Upphaf klúbbsins| Um | Upphaf | Félagar | Mótin | Vinningar | Fjöldatölur | Bikarslagur | Látnir | Þegar frétt af andláti Jóns Gunnars Ottóssonar barst okkur þann 15. september 2023 rifjaði Barði upp tilurð klúbbsins: "Skákklúbburinn varð þannig til að Jón Gunnar leysti þáverandi eiginkonu sína af sem kennara við Gagnfræðaskólann í Mosfellssveit haustið 1972. Þar var annar skákmaður fyrir, Hlynur Þór Magnússon, frændi minn frá Leirvogstungu (1947-2017), kennari og blaðamaður, og byrjuðu þeir að tefla saman. Mjög fljótlega bættist Bjarni Bjarnason, nágranni Jóns Gunnars (f. 1936), bóndi á Hraðastöðum, í hópinn og í framhaldinu Ingi Ingimundarson, góðvinur Bjarna (1925-2011), lögmaður, búsettur í Hlíðartúni. Hlynur hnippti síðan í frænda sinn sem þetta skrifar að slást í hópinn og varð sá vel við því. Við Jón Gunnar þekktumst reyndar dálítið áður þar sem hann var í Menntaskólanum við Hamrahlíð árið á undan mér, góður skákmaður en fremur lítið virkur. En síðan þessi vegferð hófst eru liðin 51 ár og eru aðeins við Bjarni á Hraðastöðum enn á lífi af upphafsmönnunum sem allir bjuggu eða voru ættaðir úr Mosfellssveitinni."
Síðast uppfært: 6. nóv. 2023
|