Lokamótið 2005
[Til baka]
Meistari 2005 er Magnús Gíslason. Í klúbbslitaræðu forseta
í lokamótinu 31. maí kom fram að vinningshlutfall hans hafi verið óvenju hátt og hann væri því vel að
titlinum kominn. Magnús fékk 369 vinninga úr 505 skákum eða hlutfallið 73,1%.
Hann var í efsta sæti í 22 mótum af þeim 37 sem hann tók þátt í, en alls voru
mótin 39 á starfsárinu. Reiknuð unnin mót Magnúsar voru 19,2 en þá hefur verið
tekið tillit til þess þegar hann deildi efsta sætinu með öðrum.
Neðast eru fáeinar myndir frá mótinu 3. maí þar sem teflt var á Skúkaskeiði.

Hin formlega mynd af Klúbbmeistaranum 2005.

Björn gerði sér ferð frá Washington DC til að taka þátt í lokaumferðinni.

Töfluhaldarinn og forseti klúbbsins spáir í töfluna.

Jónas og Bjarni tefldu áhugaverða skák.

Það eru mikil átök í gangi.

Stefán var að leika af sér.

Æ, æ, þetta er snúið!

Egill heiðraði klúbbinn með nærveru sinni þetta kvöld.


Bjarni efast um réttan gang klukkunnar.

Gestgjafinn hugar að kaffiveitingunum.

Egill og Bjarni hlusta á brjóstasögu frá Stefáni.

Klúbbforsetinn er tilbúinn með bikarinn sem verður afhentur verðandi klúbbmeistara að loknu mótinu.

Veislustjórinn Hrafnhildur leit við til að kanna hvort allt hafi verið vel reitt fram.

Seinni umferð kvöldsins er hafin.

Bjarni og Hannes takast á.

Það kom í ljós að Björn hafði fáu gleymt í langri útlegð sinni.

Magnús og Jörundur sitja í efstu sætunum tveimur eftir veturinn.

Jörundur mærir verðandi klúbbmeistara.

Barði náði vænlegri stöðu gegn Bjarna í þessari skák.

Egill lenti í smá kröggum í miðtaflinu gegn Hannesi.

Bjarni Bjarnason.

Úrslit kvöldsins tekin saman.

Húsráðandinn skenkir í glösin fyrir lokaathöfnina.

Þetta er allt að verða ljóst.

Jónas varð að sætta sig við útkomu sína þetta kvöld.

Lokatölur starfsársins voru reiknaðar af mikilli nákvæmni í Excel.

Stefán skálar við Magnús.

Forsetinn færir klúbbfélögunum lokaúrslitin og tíundar árangur manna.

Það var jú vitað fyrirfram að Magnús hafði tryggt sér meistaratitilinn þetta árið þannig að tilkynning úrslitanna var ekki sérlega spennandi.

Forseti afhendir Magnúsi klúbbmeistara 2005 Barðabikarinn.

Ánægja meistarans leynir sér ekki.

Hlýtt á klúbbslitaræðu forsetans fyrir starfsárið 2004 - 2005.

Forseti klúbbsins slítur starfsárinu og boðar til Næstabarsgleði á laugardaginn
næsta.

Barði er feginn fríinu næstu þrjá mánuði.
Teflt á Skúlaskeið 3. maí.

Stefán og Hannes.

Jónas, Adolf og Hannes.

Hannes.

Stefán.

Adolf.

Jónas og Adolf.

Kaffiveitingar.

Kaffiborðið.
[Upp] [Til baka]
|