Skákmeistari Barðaklúbbsins 2003

[Til baka]

Björn Ólafsson er bikarhafi 2003. Lokamót á Skúlaskeiði 22. apríl.
 

Bikarmeistari Barðaklúbbsins 2003.

Jónas og Jörundur takast á.

Hannes, Rögnvaldur, Björn, Barði og Bjarni.

Umferð að hefjast.

Bræðurnir Ólafsson til hægri.

Stefán er í þann veginn að leika illilega af sér.

Jörundur er ánægður með stöðu sína.

Djarft teflt og hart barist að vanda.

Í lokamótinu ræðst hvor hlýtur bikarinn, Björn eða Jörundur.

Björn reyndist í betra stuði þetta kvöldið og réði það úrslitum.

Barði og Magnús.

Eggert mætti í fyrsta sinn þetta starfsárið og gerði sitt til að hafa áhrif á lokastöðuna, vann tvær af Birni og aðra af Jörundi.

Barsl er í báðum skákum.

Jörundi líst ekki of vel á stöðu sína.

Barði er á leið í klukkuhasar.

Eggert sýnir merki um að flóknir útreikningar séu í gangi.

Smári fylgdi pabba sínum og veitti honum góðan styrk.

Enda þótt Björn slátri svörtu mönnunum fór Eggert létt með hann í þessari.

Í kaffipásunni.

Smári skoðar bikarinn.

Greinilega alvarleg pólitísk mál á dagskrá.

Lokatörnin er hafin hjá Birni.

Jörundur er orðinn vondaufur á svipinn.

Samt skal barist í fulla hnefana.

Lokaumferðin, úrslitin voru víst ráðin fyrir þessa skák.

Magnús og Hannes voru víst síðastir til að ljúka sinni skák í lokaumferð vetrarins.

Mótstafla kvöldsins.

Slegið var beint inn í Evcel til að fá nákvæmar lokaprósentur.

Jörundur var settur í hlutverk við hæfi fyrst hann réði ekki við Björn í lokaorrustunni.

Allt klárt fyrir hátíðlega úrslitastundina.

Forseti klúbbsins rýnir í Excel og gerir grein fyrir lokatölum.

Björn veit hvað klukkan slær.

Forsetinn býr sig undir afhendingu Barðabikarsins.

"Gerðu svo vel og til hamingju, Björn!"

Jörundur varð að sleppa hönd sinni af bikarnum og láta Birni hann í té.

Skál !!

Skál !!!

Enn skál og takk fyrir veturinn, boðað verður til nýs starfsárs með e-mail að hausti !.

 
[Upp] [Til baka]