Ættforeldrarnir[ Upphafssíða ] [ Skráning ]Um Lýð Jónsson og Önnu MagnúsdótturLýður Jónsson var fæddur 27. mars 1845. Hann var sonur hjónanna á Enni, þeirra Jóns Jónssonar, bónda á Enni, Andréssonar, og Hallfríðar Brynjólfsdóttur, á Kárastöðum á Vatnsnesi, Brynjólfssonar. Lýður lést 27. maí 1937, það var rúmum tveimur mánuðum eftir andlát eiginkonu hans. Anna Magnúsdóttir var
fædd 1853. Hún var dóttir Magnúsar bónda á Óspakseyri, Jónssonar,
alþingismanns í Ólafsdal, Bjarnasonar á Hraunum í Skagafirði, og Guðrúnar Jónsdóttur, alþingismanns
úr Skagafirði, Samsonarsonar. Anna lést 19. mars 1937.
Lýður og Anna bjuggu á Stað í Hrútafirði í Strandasýslu á árunum 1874 til 1880. Eftir það fluttu þau til Ennis þar sem Lýður hafði alist upp og þar bjuggu þau uns Lýður lét af búskap vegna aldurs árið 1932. Honum er lýst sem gildum bónda og hreppsstjóri var hann í nær hálfa öld. Lýður var í hreppsnefnd í 25 ár og var hann lengstum oddviti þann tíma. Einnig var hann lengi í sýslunefnd. Lýður var gerður riddari af fálkaorðunni 1932, árið sem hann lét af hreppsstjórn. Jón Lýðsson, sonur þeirra hjóna, bjó á Enni ásamt foreldrum sínum frá árinu 1912 og var síðan einn við búskap þar eftir að Lýður hætti. Sigmundur Lýðsson sonur þeirra bjó einnig um skeið á Enni eða á árunum 1910-1914. Þau Lýður og Anna bjuggu við mikið barnalán og varð þeim 12 barna auðið á 22 árum. Börn þeirra voru þessi: Ingibjörg (1873), Brynjólfur (1875), Guðrún (1876), Magnús (1878), Sigmundur (1880), Matthildur (1883), Oddur (1884), Jón (1887), Sigurður (1889), Valgerður (1890), Anna (1893) og Ragnheiður (1895). [Jón Guðnason, Strandamenn, bls. 180
og víðar] Vefur Ennisættarinnar © 2000 Magnús Gíslason
|