Bajsaid í búrinu


Sjá frásögn |
Árið 1402 sigraði mongólíufurstinn Timur
(Timur-Lenk) ottomanhöfðingjann Bajsaid (Sultan Bayezid I) í orrustu við
Angora (Ankara) sem háð var þann 20. júlí. Eftir það hafði Timur hinn
fallna höfðingja í búri sem hann tók með sér hvert sem hann fór og var
það gert Bajsaid til háðungar. Áður, þegar Bajsaid sat á veldisstól
sínum, iðkaði hann tafl með lifandi mönnum og hafði til þess hvíta þræla
og svarta. Til að lífga upp á leikinn hjó hann hausinn af viðkomandi
þrælum þegar menn féllu í skákinni.
Frásögn þessi er tilefni eftirfarandi skákdæmis. Það sýnir
hvernig Timur lokar fanga sinn inn í þröngu búrinu.
Bajsaid er gjörsamlega varnarlaus og hver leikur hans er algjörlega
þvingaður.
Höfundur er eistneski skákmeistarinn Lionel Kieseritzk (1806-1853).
|
[Event "Angora"]
[Site "Bardagi"]
[Date "1402.07.20"]
[Round "1"]
[White "Timur"]
[Black "Bajsaid"]
[Result "1-0"]
[SetUp "1"]
[FEN "4N3/P2p1Np1/3Qp1R1/2pR4/2p1kpp1/b2bp2B/q3PP2/3K4 w - - 0 1"]
[PlyCount "19"]
{[#]} 1. f3+ gxf3 2. exd3+ cxd3 3. Bf5+ exf5 4. Re6+ dxe6 5. Nf6+ gxf6 6. Rd4+
cxd4 7. a8=Q+ Qd5 8. Qaxd5+ exd5 9. Qe5+ fxe5 10. Ng5# *