Klúbbmeistari Barðaklúbbsins 2014
Adolf H. Petersen

Adolf tekur við Barðabikarnum úr hendi forseta klúbbsins og er hann nú handhafi bikarins í fimmta sinn. Fleiri myndir frá lokaumferðinni 27. maí og afhendingu bikarins eru væntanlegar á næstunni.

Þátttaka og árangur 2013-2014

   Nafn Vinn. Fjöldi Hlutf. Unnin mót Þátttaka
1  Adolf 230,5 313 73,6% 15,8 42,8% 27 73%
2  Eggert 238,0 385 61,8% 5,5 14,9% 33 89%
3  Björn 150,5 255 59,0% 4,8 13,1% 23 62%
4  Jörundur 228,5 400 57,1% 3,2 8,6% 35 95%
5  Bjarni 209,0 384 54,4% 3,8 10,4% 34 92%
6  Barði 117,0 259 45,2% 0,5 1,4% 24 65%
7  Magnús 147,5 361 40,9% 1,3 3,6% 32 86%
8  Hannes 133,0 397 33,5%   0,0% 35 95%
9  Stefán 137,5 412 33,4%   0,0% 36 97%
   Óskar 7,0 8 87,5% 1,0 2,7% 1 3%
   Gylfi Þ 11,5 14 82,1% 1,0 2,7% 1 3%
   Jónas 15,0 48 31,3%   0,0% 4 11%
   Jón Gunnar 3,5 14 25,0%   0,0% 1 3%
   Egill 3,5 14 25,0%   0,0% 1 3%
  Skákafjöldi:  1.632 Mótafjöldi:  37 100,0%    

Staðan 27. maí 2014. Lokastaða.

Barðaklúbburinn hefur starfað í meira en 40 ár, en hann varð til upp úr 1970 þegar nokkrir háskólastúdentar, flestir úr náttúrufræðigreinum, ásamt fleirum hófu að tefla hraðskák nokkuð reglulega í heimahúsum. Ýmsar mannabreytingar hafa orðið gegnum árin, en síðustu 2-3 áratugina hefur áberandi fastur kjarni talist til reglulegra félaga í klúbbnum. Það er ævarandi forseti klúbbsins sem á heiðurinn af því að halda utan um starfsemina og án styrkrar stjórnunar hans væri klúbburinn ekki mikils virði. Forsetinn á því miklar þakkir skildar frá félögum sínum.