Barðabikarinn

Um Barðabikarinn hefur verið teflt frá árinu 1988. Bikarinn er með hefðbundnu lagi og er nafn hans grafið með áberandi hætti á framhliðina. Bikarinn stendur á stöpli úr rauðgulu marmaralíki og á stöpulinn eru festar litlar silfurplötur sem í eru greipt nöfn bikarhafa hvers árs. Bikarinn var framlag Björns heitins Lárussonar og Eggerts Lárussonar til klúbbsins á sínum tíma. Tilgangurinn með bikarnum er að skerpa baráttuvilja félagsmanna, gera keppni alla betur markvissa og árangur eftirsóknarverðan.

Barðabikarinn

Barðabikarinn
Handhafi bikarsins er klúbbmeistari hvers árs


1988 Jón Gunnar Ottósson 2002 Jörundur Þórðarson
1989 Jón Gunnar Ottósson 2003 Björn G. Ólafsson
1990 Jörundur Þórðarson 2004 Magnús Gíslason
1991 Magnús Gíslason 2005 Magnús Gíslason
1992 Sigurbjörn Björnsson 2006 Magnús Gíslason
1993 Sigurbjörn Björnsson 2007 Björn G. Ólafsson
1994 Björn R. Lárusson 2008 Jörundur Þórðarson
1995 Björn R. Lárusson 2009 Adolf H. Petersen
1996 Björn R. Lárusson 2010 Adolf H. Petersen
1997 Magnús Gíslason 2011 Adolf H. Petersen
1998 Björn R. Lárusson 2012 Adolf H. Petersen
1999 Björn R. Lárusson 2013 Jörundur Þórðarson
2000 Björn G. Ólafsson 2014 Adolf H. Petersen
2001 Jörundur Þórðarson

Til þess vinna bikarinn þarf klúbbfélagi að vera með hæsta vinningahlutfall eftir starfsárið og hafa teflt að minnsta kosti 340 skákir eða tekið þátt í 25 mótum. Ekki er að efa að bikarinn hefur haft jákvæð áhrif á taflmennsku flestra klúbbfélaganna og gert keppni alla skemmtilegri.