Klúbbmeistari Barðaklúbbsins 2012
Adolf Petersen

Forseti Barðaklúbbsins afhendir klúbbmeistaranum bikarinn við lok starfsársins 2011-2012. [Myndir frá lokaumferðinni].


Þátttaka og árangur 2011-2012

   Nafn Vinn. Fjöldi Hlutf. Unnin mót Þátttaka
1  Adolf 217,0 311 69,8% 10,0 25,6% 29 74%
2  Björn 154,0 261 59,0% 4,3 11,1% 25 64%
3  Jörundur 230,0 397 57,9% 9,0 23,1% 36 92%
4  Eggert 185,5 326 56,9% 2,5 6,4% 30 77%
5  Bjarni Ól 196,5 375 52,4% 5,3 13,7% 34 87%
6  Barði 171,0 341 50,1% 2,0 5,1% 31 79%
7  Magnús 191,0 382 50,0% 3,5 9,0% 34 87%
8  Jónas 67,0 159 42,1% 1,3 3,4% 16 41%
9  Stefán 84,0 286 29,4%   0,0% 27 69%
10  Hannes 105,0 372 28,2%   0,0% 34 87%
11  Óskar 9,0 10 90,0% 1,0 2,6% 1 3%
12  Egill 10,5 16 65,6%   0,0% 2 5%
13  Emil 1,0 8 12,5%   0,0% 1 3%
  Skákafjöldi:  1.622 Mótafjöldi:  39 100,0%    

Staðan 29. maí 2012 - Lokastaða

Barðaklúbburinn hefur starfað í nær 40 ár, en hann varð til upp úr 1970 þegar nokkrir háskólastúdentar, flestir úr náttúrufræðigreinum, ásamt fleirum hófu að tefla hraðskák nokkuð reglulega í heimahúsum. Ýmsar mannabreytingar hafa orðið gegnum árin, en síðustu 2-3 áratugina hefur áberandi fastur kjarni talist til reglulegra félaga í klúbbnum. Það er ævarandi forseti klúbbsins sem á heiðurinn af því að halda utan um starfsemina og án styrkrar stjórnunar hans væri klúbburinn án efa heldur lítils virði. Forsetinn á því miklar þakkir skyldar frá félögum sínum.