Þátttaka og árangur 2010-2011

   Nafn Vinn. Fjöldi Hlutf. Unnin mót Þátttaka
1  Adolf 218,5 294 74,3% 18,0 47,4% 27 71%
2  Jörundur 207,0 350 59,1% 6,5 17,1% 32 84%
3  Björn 215,5 370 58,2% 2,0 5,3% 34 89%
4  Eggert 224,5 389 57,7% 5,0 13,2% 35 92%
5  Bjarni Ól 218,0 400 54,5% 3,0 7,9% 36 95%
6  Magnús 152,5 305 50,0% 2,5 6,6% 28 74%
7  Barði 162,5 350 46,4%   0,0% 31 82%
8  Jónas 65,0 191 34,0%   0,0% 17 45%
9  Stefán 118,5 359 33,0%   0,0% 33 87%
10  Hannes 115,5 373 31,0%   0,0% 34 89%
11  Óskar 7,5 9,0 83,3% 1,0 2,6% 1 3%
12  Egill 26,5 55 48,2%   0,0% 6 16%
13  Bjarni Bj 6,5 22 29,5%   0,0% 2 5%
14  Geir R 0,5 9 5,6%   0,0% 1 3%
  Skákafjöldi:  1.739 Mótafjöldi:  38 100,0%    

LOKASTAÐA
Staðan
31. maí 2011

Klúbbmeistari Barðaklúbbsins 2011:
Adolf H. Petersen

Þennan titil vinnur Adolf nú þriðja árið í röð. Hann vann titilinn með miklum yfirburðum, hlaut 74,3% vinninga og vann næstum því annað hvert mót vetrarins og reyndar mikinn meirihluta þeirra móta sem hann tók þátt í.

Barðaklúbburinn hefur starfað í nær 40 ár, en hann varð til upp úr 1970 þegar nokkrir háskólastúdentar, flestir úr náttúrufræðigreinum, ásamt fleirum hófu að tefla hraðskák nokkuð reglulega í heimahúsum. Ýmsar mannabreytingar hafa orðið gegnum árin, en síðustu 2-3 áratugina hefur áberandi fastur kjarni talist til reglulegra félaga í klúbbnum. Það er ævarandi forseti klúbbsins sem á heiðurinn af því að halda utan um starfsemina og án styrkrar stjórnunar hans væri klúbburinn án efa heldur lítils virði. Forsetinn á því miklar þakkir skyldar frá félögum sínum.