Skákmeistari Barðaklúbbsins 2010

Adolf H. Petersen

Adolf gaf ekkert eftir og stefndi greinilega ótrauður strax í upphafi starfsársins á að halda meistaratitlinum og virtist hann ekki eiga í neinum erfiðleikum með það. Hann vann flest mótin eða 12,3 mót af 38 mótum alls með vinningshlutfallinu 75,8%. Af gjaldgengum þátttakendum varð Jörundur í öðru sæti með 68,1% vinningshlutfall og Bjarni Ólafsson í því þriðja með 53,7%.

Smelltu á myndina ...

Þátttaka og árangur 2009-2010

   Nafn Vinn. Fjöldi Hlutf. Unnin mót Þátttaka
1  Adolf 216,0 285,0 75,8% 12,3 32,5% 26 68%
2  Egill 64,5 92,0 70,1% 3,0 7,9% 9 24%
3  Jörundur 224,0 329,0 68,1% 8,8 23,2% 31 82%
4  Eggert 124,0 216,0 57,4% 3,0 7,9% 23 61%
5  Bjarni Ól 203,5 379,0 53,7% 5,0 13,2% 35 92%
6  Magnús 194,0 362,0 53,6% 1,3 3,5% 34 89%
7  Barði 150,5 319,0 47,2% 1,5 3,9% 31 82%
8  Jónas 180,0 409,0 44,0% 0,5 1,3% 38 100%
9  Hannes 132,5 389,0 34,1%   0,0% 36 95%
10  Stefán 97,0 356,0 27,2%   0,0% 34 89%
11  Bjarni Bj 18,5 79,0 23,4%   0,0% 9 24%
12  Jón Hálfd. 28,5 33,0 86,4% 2,5 6,6% 4 11%
13  Sigurður A 4,5 8,0 56,3%   0,0% 1 3%
14  Björn 17,0 31,0 54,8%   0,0% 3 8%
15  Ólafur H 4,0 8,0 50,0%   0,0% 1 3%
16  Víðir 3,0 9,0 33,3%   0,0% 1 3%
17  Geir R 5,0 22,0 22,7%   0,0% 2 5%
18  Ólafur Á 0,5 8,0 6,3%   0,0% 1 3%
  Skákafjöldi:  1.667 Mótafjöldi:  38 100,0%    

Lokastaðan, 25. maí 2010

Barðaklúbburinn varð til í byrjun áttunda áratugar síðustu aldar og verðskuldar því bæði vegna aldurs og stöðugleika að teljast til hinna virðulegri heimahúsaklúbba hér á landi. Starfsemin er á höfuðborgarsvæðinu en nær þó einnig til öfluga félagsmanna í öðrum landshornum. Teflt er í heimahúsum reglulega einu sinni í viku frá fyrsta þriðjudag í september til síðasta þriðjudags í maí næsta ár. Stjórnun klúbbsins er öll í höndum ævarandi forseta klúbbsins, en honum hefur farnast með eindæmum vel í starfi sínu. Almennir félagar þurfa því ekki að hafa áhyggjur af mótastjórnun, töfluhaldi, staðarvali móta, dómum í ágreiningsmálum eða almennri stefnumótun í klúbbnum. Þeir geta því teflt af þeim mun meiri gleði, kappi og ánægju, þökk sé forseta klúubbsins.