Skákmeistari Barðaklúbbsins 2009

Adolf H. Petersen

Adolf vann langflest mótin eða 15,3 mót af 38 mótum alls. En það var hið háa vinningahlutfall hans, 72,9%, sem skilaði honum titlinum sem efsta manni með fullgildri þátttöku á starfsárinu.

Smelltu á myndina ...


Þátttaka og árangur 2008-2009

   Nafn Vinn. Fjöldi Hlutf. Unnin mót Þátttaka
1  Óskar 67,0 84,0 79,8% 5,0 13,2% 9 24%
2  Jón Hálfd. 59,5 78,0 76,3% 3,3 8,6% 8 21%
3  Adolf 267,5 367,0 72,9% 15,3 40,1% 33 87%
4  Jörundur 219,0 327,0 67,0% 7,3 19,3% 30 79%
5  Magnús 191,0 337,0 56,7% 3,3 8,8% 31 82%
6  Bjarni Ól 189,5 350,0 54,1% 1,3 3,3% 32 84%
7  Egill 42,0 79,0 53,2%   0,0% 8 21%
8  Barði 169,0 342,0 49,4% 0,3 0,9% 31 82%
9  Eggert 47,5 100,0 47,5% 1,0 2,6% 10 26%
10  Jónas 151,5 395,0 38,4%   0,0% 35 92%
11  Stefán 130,0 410,0 31,7%   0,0% 37 97%
12  Hannes 119,5 389,0 30,7% 0,3 0,7% 35 92%
13  Sigurður A 9,0 12,0 75,0% 1,0 2,6% 1 3%
14  Björn 24,5 39,0 62,8%   0,0% 5 13%
15  Jón Gunnar 3,0 8,0 37,5%   0,0% 1 3%
16  Sigurður J 10,0 39,0 25,6%   0,0% 4 11%
17  Ólafur Á 2,0 12,0 16,7%   0,0% 1 3%
18  Bjarni Bj 3,5 33,0 10,6%   0,0% 3 8%
  Skákafjöldi:  1.705 Mótafjöldi:  38 100,0%    

Staðan 26. maí 2009 - Lokastaða

Barðaklúbburinn varð til í byrjun áttunda áratugar síðustu aldar og verðskuldar því bæði vegna aldurs og stöðugleika að teljast til hinna virðulegri heimahúsaklúbba hér á landi. Starfsemin er á höfuðborgarsvæðinu en nær þó einnig til öfluga félagsmanna í öðrum landshornum. Teflt er í heimahúsum reglulega einu sinni í viku frá fyrsta þriðjudag í september til síðasta þriðjudags í maí næsta ár. Stjórnun klúbbsins er öll í höndum ævarandi forseta klúbbsins, en honum hefur farnast með eindæmum vel í starfi sínu. Almennir félagar þurfa því ekki að hafa áhyggjur af mótastjórnun, töfluhaldi, staðarvali móta, dómum í ágreiningsmálum eða almennri stefnumótun í klúbbnum. Þeir geta því teflt af þeim mun meiri gleði, kappi og ánægju, þökk sé forseta klúubbsins.