Mótið 30. maí 2006

Magnús vann þetta síðasta mót og varð um leið bikarhafi klúbbsins 2006. Ljóst mátti vera undanfarið að svo myndi verða þar sem Adolf hafði ekki næga þátttöku til að eiga rétt á bikarnum. Úrslit í móti kvöldsins voru á þann veg að efsti maður fékk 10 vinninga, sá næsti 9, sá þriðji 8 og svo koll af kolli niður í 5 vinninga.