Mótið 7. feb. 2006

Björn og Jörundur fengu flesta vinninga og skiptu með sér tveimur efstu sætunum og Magnús var síðan hálfum vinningi á eftir þeim. Annars var keppni fremur jöfn og efstu menn unnu ekki með háu vinningahlutfalli. Magnús sleppti Adolfi upp fyrir sig í vetrarprósentu, en reyndar er Adolf með litla þátttöku og kemur því tæpast til greina sem klúbbmeistari. Jörundur saxar hins vegar jafnt og þétt á það forskot sem Magnús hefur haft og gæti orðið hörð keppni þeirra á milli um meistaratitilinn.