Mótið 13. sept. 2005
Það gekk á ýmsu í þessu öðru móti vetrarina. Óskari tókst ekki að endurtaka leikinn frá fyrsta mótinu því fjórir urðu jafnir og efstir í sjö manna hópi. Litlu munaði að hrein úrslit fengjust, en forseta klúbbsins tókst að ná í lokaumferðinni hlutdeild í efsta sætinu með að hirða kónginn af gestgjafanum í bráðvondri stöðu, en sá hefði að öðrum kosti unnið mótið einn.
|