Mótið 6. sept. 2005
Stefán hýsti þetta fyrsta mót á nýju starfsári. Eins og gengur komu menn misjafnlega undan sumri en eitt var víst að kátínan reið ekki við einteyming enda allir áfjáðir í að hefjast handa í taflmennskunni. Eins og gjarnan áður mætti Óskar í fyrsta mótið til þess að sópa að sér vinningunum og kom það reyndar engum á óvart að svo færi, 91,7% er glæsilegt!
|