Klúbbmeistari 2005-2006

Magnús Gíslason er handhafi
Barðabikarsins 2006

Magnús telst um leið klúbbmeistari Barðaklúbbsins veturinn 2005-2006. Hann var
með 66,3% vinningshlutfall og vann 12,5 mót. Magnús er með bestan árangur þeirra
föstu klúbbfélaga sem uppfylla skilyrði þess að geta gert tilkall til bikarins.

Adolf var með betri árangur en Magnús, eða 69,4%, en ekki næga þátttöku til þess að geta
öðlast ofangreindar vegtyllur. Nánari upplýsingar um árangur Magnúsar og annarra félaga
má sjá í töflunni að neðan. Myndir frá lokaumferð og afhendingu bikars eru
í myndaalbúmi Barðaklúbbsins.

 

Þátttaka og árangur 2005-2006

 
Lokastaða - 30. maí 2006

 
[ Innbyrðis úrslit ][ Mótaáætlun ]   


Barðaklúbburinn

Klúbburinn varð til í byrjun áttunda áratugar síðustu aldar og verðskuldar því bæði vegna aldurs og stöðugleika að teljast til virðulegri heimahúsaklúbba. Starfsemin er á höfuðborgarsvæðinu en nær þó einnig til öfluga félagsmanna í hinum landshornunum. Teflt er í heimahúsum reglulega einu sinni í viku frá fyrsta þriðjudag í september til síðasta þriðjudags í maí næsta ár. Stjórnun er öll í höndum ævarandi forseta klúbbsins, en honum hefur farnast með eindæmum vel í starfi sínum. Almennir félagar þurfa þannig ekki að hafa áhyggjur af stefnumótun í klúbbnum, mótsstjórn, töfluhaldi, staðarvali móta eða dómum í ágreiningsmálum. Þess vegna geta þeir teflt af þeim mun meiri gleði, kappi og ánægju, þökk sé forseta klúubbsins.