Barðabikarinn

Um Barðabikarinn hefur verið teflt frá árinu 1988. Bikarinn er með hefðbundnu lagi og er nafn hans grafið með áberandi hætti á framhliðina. Bikarinn stendur á stöpli úr rauðgulu marmaralíki og á stöpulinn eru festar litlar silfurplötur sem í eru greipt nöfn bikarhafa hvers árs. Bikarinn var framlag Björns heitins Lárussonar og Eggerts Lárussonar til klúbbsins á sínum tíma. Tilgangurinn með bikarnum er að skerpa baráttuvilja félagsmanna, gera keppni alla betur markvissa og árangur eftirsóknarverðan. Til þess vinna bikarinn þarf klúbbfélagi að vera með hæsta vinningahlutfall eftir starfsárið og hafa teflt að minnsta kosti 340 skákir eða tekið þátt í 25 mótum. Ekki er að efa að bikarinn hefur haft jákvæð áhrif á taflmennsku flestra klúbbfélaganna og gert keppni alla skemmtilegri.

Barðabikarinn
Handhafi bikarsins er klúbbmeistari hvers árs


1988 Jón Gunnar Ottósson 1989 Jón Gunnar Ottósson
1990 Jörundur Þórðarson 1991 Magnús Gíslason
1992 Sigurbjörn Björnsson 1993 Sigurbjörn Björnsson
1994 Björn R. Lárusson 1995 Björn R. Lárusson
1996 Björn R. Lárusson 1997 Magnús Gíslason
1998 Björn R. Lárusson 1999 Björn R. Lárusson
2000 Björn G. Ólafsson 2001 Jörundur Þórðarson
2002 Jörundur Þórðarson 2003 Björn G. Ólafsson
2004 Magnús Gíslason 2005 Magnús Gíslason
2006 Magnús Gíslason