Mótið 22. mars 2005
Sigurður Arnarson kom að austan undir þeirri yfirlýsingu að lækka rostan í Magnúsi sem gumað hafði af því að hafa unnið 5 mót í röð. Þetta tókst honum að sumu leyti, en þó ekki alveg. Siggi og Magnús skiptu með sér 1. og 2. sæti en Siggi hafði þó betur í innbyrðis viðureignum þeirra. Hannes og Barði skiptu með sér 3. og 4. sæti.
|