Mótið 8. feb. 2005

Barði rétt marði það að vinna þetta mót. Taflmennska hans átti að eigin sögn þó ekki að duga nema fyrir næstneðsta sætinu, en gæfusólin stóð í hádegisstað allan tímann. Jörundur varð annar og Bjarni Ólafsson lenti í 3. sæti.