Mótið 28. des. 2004

Adolf tefldi af miklum krafti og vann sannfærandi, fékk 12,5 vinninga úr 14 skákum. Björn og Magnús komu næstir með 8 vinninga hvor. Í árslok er heildarstaðan sú að Adolf hefur hæst hlutfall vinninga, 76,2%, en aðeins úr þremur mótum sem telst ekki fullgild þátttaka. Magnús leiðir því eftir fyrri hluta starfsársins með 74,3%.