Mótið 9. nóv. 2004

Jón Gunnar kom, sá og vann mótið með 12 vinningum af 16 mögulegum. Jón beitti áður notuðum mótagambít, kvartaði og kveinaði yfir því að hann væri ekki í neinni æfingu og kynni varla lengur að tefla. Andstæðingarnir uggðu ekki að sér og Jón vann og vann. Magnús var næstur með 11,5 vinninga og þá Jörundur með 10 vinninga.