Mótið 7. sept. 2004

Fyrsta mót vetrarins fór fram á heimavelli forseta klúbbsins. Menn voru að vonum kátir að hefja tafl á ný. Þar sem Magnús var fjarstaddur bikarafhendingu síðastliðið vor var honum afhentur bikarinn við þetta tækifæri fyrir bestan árangur síðasta vetrar. Hann vann svo þetta fyrsta mót.