Þátttaka og árangur 2004-2005

Magnús er klúbbmeistari 2005

Meistari Barðaklúbbsins 2005 er Magnús Gíslason. Í klúbbslitaræðu forseta kom fram að vinningshlutfall hans hafi verið óvenju hátt og hann væri því vel að titlinum kominn. Magnús fékk 369 vinninga úr 505 skákum eða hlutfallið 73,1%. Hann var í efsta sæti í 22 mótum af þeim 37 sem hann tók þátt í, en alls voru mótin 39 á starfsárinu. Reiknuð unnin mót Magnúsar voru 19,2 en þá hefur verið tekið tillit til þess þegar hann deildi efsta sætinu með öðrum. Sjá má myndir frá athöfninni í albúmi heimasíðunnar.

Myndir frá lokakvöldi.

Úrslit má sjá nánar í töflunni að neðan.

 
Lokastaðan, 31. maí 2005

 
[ Mótaáætlun ]   


Barðaklúbburinn

Klúbburinn varð til í byrjun áttunda áratugar síðustu aldar og verðskuldar því bæði vegna aldurs og stöðugleika að teljast til virðulegri heimahúsaklúbba. Starfsemin er á höfuðborgarsvæðinu en nær þó einnig til öfluga félagsmanna í hinum landshornunum. Teflt er í heimahúsum reglulega einu sinni í viku frá fyrsta þriðjudag í september til síðasta þriðjudags í maí næsta ár. Stjórnun er öll í höndum ævarandi forseta klúbbsins, en honum hefur farnast með eindæmum vel í starfi sínum. Almennir félagar þurfa þannig ekki að hafa áhyggjur af stefnumótun í klúbbnum, mótsstjórn, töfluhaldi, staðarvali móta eða dómum í ágreiningsmálum. Þess vegna geta þeir teflt af þeim mun meiri gleði, kappi og ánægju, þökk sé forseta klúubbsins.