Barðabikarinn
Um Barðabikarinn hefur verið teflt frá árinu 1988.
Bikarinn er með hefðbundnu lagi og er nafn hans grafið með áberandi
hætti á framhliðina. Bikarinn stendur á stöpli úr rauðgulu
marmaralíki og á stöpulinn eru festar litlar silfurplötur sem í eru
greipt nöfn
bikarhafa hvers árs. Bikarinn var framlag Björns heitins Lárussonar og Eggerts
Lárussonar til klúbbsins á sínum tíma. Tilgangurinn með bikarnum er að skerpa baráttuvilja
félagsmanna, gera keppni alla betur markvissa og árangur
eftirsóknarverðan. Ekki er að efa að bikarinn hefur haft jákvæð
áhrif á taflmennsku flestra klúbbfélaganna og gert keppni alla
skemmtilegri.

Barðabikarinn
Handhafi bikarsins er klúbbmeistari hvers árs
|
| 1988 |
Jón Gunnar Ottósson |
1989 |
Jón Gunnar Ottósson |
| 1990 |
Jörundur Þórðarson |
1991 |
Magnús Gíslason |
| 1992 |
Sigurbjörn Björnsson |
1993 |
Sigurbjörn Björnsson |
| 1994 |
Björn R. Lárusson |
1995 |
Björn R. Lárusson |
| 1996 |
Björn R. Lárusson |
1997 |
Magnús Gíslason |
| 1998 |
Björn R. Lárusson |
1999 |
Björn R. Lárusson |
| 2000 |
Björn G. Ólafsson |
2001 |
Jörundur Þórðarson |
| 2002 |
Jörundur Þórðarson |
2003 |
Björn G. Ólafsson |
| 2004 |
Magnús Gíslason |
2005 |
Magnús Gíslason |
|
|
|