Mótið 11. maí 2004
Barði tefldi af miklum móð og vann með 8 vinningum af 12 mögulegum. Bjarni Ólafsson tryggði sér annað sætið og þeir Jónas og Adolf skiptu því næsta. Magnús mátti þola nokkurt háð vegna frammistöðu sinnar, en hann verður síðan með leyfi í tveimur síðustu mótum vetrarins.
|