Mótið 27. apríl 2004

Magnús var gestgjafi að þessu sinni og tók þannig á móti gestum sínum að hann vann af þeim 10 skákir af 12 mögulegum og varð með því efstur í mótinu. Hannes náði öðru sæti með 7,5 vinninga og Jörundur lenti í því þriðja með 7 vinninga.