Mótið 13. jan. 2004

Magnús vann eins og stundum áður, nú með 8,5 vinningum af 12. Bjarni Ólafsson fékk 8 vinninga og aðrir minna. Jörundur lét ekki enn sjá sig á nýja árinu (mun vera djúpt sokkinn í bridge þessa dagana), en hann sendi þó skilaboð þess efnis að hann yrði með næst.