Mótið 11. nóv. 2003

Jörundur tefldi vel og vann. Eins og segir í mótsboði klúbbforseta var teflt hjá Birni Ólafssyni á Lynghaga og líklega í síðasta sinn um hríð á þeim stað, næst verði svo teflt þar árið 2006. Ekki er ástæða til að efast um orð forsetans enda eru forspárhæfileikar hans þjóðkunnir.