Mótið 28. okt. 2003
Björn vann með 10 vinningum af 14 mögulegum. Fast á hæla hans komu Jörundur og Magnús með 9 vinninga hvor. Barði byrjaði með látum ferskur eftir utanlandsförina en datt niður í seinni umferðinni, e.t.v. hefði hann þurft að dvelja aðeins lengur úti til að halda betur dampi.
|