Þátttaka og árangur 2003-2004
Staðan þann 26. maí 2004 - Lokastaðan BarðaklúbburinnKlúbburinn varð til í byrjun áttunda áratugar síðustu aldar og verðskuldar því bæði vegna aldurs og stöðugleika að teljast til virðulegri heimahúsaklúbba. Starfsemin er á höfuðborgarsvæðinu en nær þó einnig til öfluga félagsmanna í hinum landshornunum. Teflt er í heimahúsum reglulega einu sinni í viku frá fyrsta þriðjudag í september til síðasta þriðjudags í maí næsta ár. Stjórnun er öll í höndum ævarandi forseta klúbbsins, en honum hefur farnast með eindæmum vel í starfi sínum. Almennir félagar þurfa þannig ekki að hafa áhyggjur af stefnumótun í klúbbnum, mótsstjórn, töfluhaldi, staðarvali móta eða dómum í ágreiningsmálum. Þess vegna geta þeir teflt af þeim mun meiri gleði, kappi og ánægju, þökk sé forseta klúubbsins.
|