Úr skákreglum FIDE
Það er einkum þrennt sem er frábrugðið
íslenskri hefð og klúbburinn ætti ef til vill að tileinka sér:
-
Það á að hrókera með annari hönd en
ekki báðum!
-
Ná í drottningu ef peð er rakið upp í
borð og menn vilja fá sér drottningu, ekki snúa við hróki t.d. og setja
hann á reitinn. Það er leyfilegt að stöðva klukkuna meðan menn leita að
nýrri drottningu.
-
Ekki drepa kónginn ef andstæðingurinn
skilur kóng sinn eftir í skák heldur krefjast vinnings vegna þess að
hann hafi leikið ólöglegum leik (hraðskák).
[Tillegg frá Jóni Hálfdánarsyni í mars 2017]

Gömlu reglurnar "snertur - hreyfður" og "bannað að taka upp" eru að
sjálfsögðu innbyggðar í alla í klúbbnum.
|