Bikarafhending og lokaumferð 2025

[Til baka]

Lokamótið fór fram 26. maí og voru níu þátttakendur mættir. Að mótinu loknu rakti forseti klúbbsins helstu niðurstöður og árangur félaganna á starfsárinu eins og venjan er. Þá afhenti hann klúbbmeistara 2026 bikarinn, en það er ekki í fyrsta sinn sem hann  hlýtur þann merka bikar eins og allir vita. Meistaranum var klappað lof í lófa og skálað í freyðivíni. Þá var gert hlé á starfseminni og boðað til næsta móts eða öllu hekdur starfsárs fyrsta þriðjudag í september.


 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

PS: Myndatökumaðurinn gleymdi að taka sjálfu eða vera með á mynd, en hann var vissulega þátttakandi og á staðnum.

[Til baka]